Vísar ásökunum þingmanns á bug

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. Eggert Jóhannesson

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra vísar alfarið á bug ásökunum Guðlaugs Þórs Þórðarsonar alþingismanns um að „ráðuneytið hafi gefið Alþingi vísvitandi röng svör og leynt upplýsingum,“ segir m.a. í yfirlýsingu frá forsætisráðherra.

Yfirlýsingin er svohljóðandi:

„Forsætisráðherra vísar alfarið á bug tilefnislausum og ósæmilegum ásökunum og fullyrðingum alþingismannsins Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um að ráðuneytið hafi gefið Alþingi vísvitandi röng svör og leynt upplýsingum og þeim alvarlegu dylgjum að það sé gert vegna pólitískra tengsla forsætisráðherra við einstaklinga sem málið varðar. Svörin voru öll unnin af fyllstu vandvirkni og eftir bestu vitund en úrvinnslan var í höndum Fjársýslu ríkisins og allra ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

Málatilbúnaður alþingismannsins stenst enga skoðun og er alvarleg aðför að starfsheiðri starfsmanna Stjórnarráðsins eins og ítarlega er rakið í meðfylgjandi bréfi forsætisráðuneytisins til forsætisnefndar Alþingis sem sent var í dag.

Svar forsætisráðuneytisins var grundvallað á samhljóða svörum þeirra 12 ráðuneyta sem fengu fyrirspurnir alþingismannsins sendar en eins og fram kemur í bréfinu þurfti ítekað að kalla eftir mismunandi svörum ráðuneytanna þar sem alþingismaðurinn breytti fyrirspurnum sínum fjórum sinnum. Eðli málsins samkvæmt tafði þessi hringlandaháttur fyrirspyrjanda skil á endanlegum svörum. Forsætisráðuneytið fullyrðir að öll ráðuneytin hafi unnið svör sín eftir bestu samvisku og ráðuneytið harmar þær ásakanir sem þingmaðurinn ber á þá starfsmenn tólf ráðuneyta sem unnu svörin og leyndu engu.“

Sakar forsætisráðherra um að leyna upplýsingum

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert