Sérstök sjónarmið og mynda ekki fordæmi
Róbert Marshall, formaður allsherjarnefndar Alþingis, sagði þegar hann mælti fyrir frumvarpi um veitingu ríkisborgararéttar á þingfundi í gær, að sérstök sjónarmið lægju til grundvallar hverri ákvörðun um ríkisborgararétt og þau mynduðu ekki fordæmi.
Meðal þeirra 43 einstaklinga, sem Alþingi samþykkti að veita íslenskan ríkisborgararétt, var mánaðargamall drengur, sem indversk staðgöngumóðir eignaðist fyrir íslensk hjón en staðgöngumæðrun er ólögleg hér á landi.
Að frumvarpinu stóðu allir þingmenn, sem eiga sæti í allsherjarnefnd, nema Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokks. Vigdís tók ekki þátt í atkvæðagreiðslu um málið á þingfundi.
Róbert sagði, þegar hann mælti fyrir frumvarpinu, að í allsherjarnefnd sé unnið með miklar persónuupplýsingar og því „mjög mikilvægt að nefndarmenn einstakir tjái sig ekki um einstök mál í þessu tilliti. Þau eru hver um sig sérstök og sérstök sjónarmið sem gilda og liggja til grundvallar hverri ákvörðun og þau mynda ekki fordæmi,“ sagði Róbert m.a. í tveggja mínútna langri framsöguræðu sinni.
Alþingi afgreiddi frumvarpið snaggaralega. Málsmeðferðin með framsögu og atkvæðagreiðslum stóð frá kl. 14.34 til klukkan 14.40 eða í sex mínútur. Á þeim tíma var þremur fundum Alþingis slitið, tveir settir og fimm atkvæðagreiðslur fóru fram. Frumvarpið var samþykkt sem lög frá Alþingi með 50 samhljóða atkvæðum.
|
|
Frumvarp um veitingu ríkisborgararéttar |
Innlent »
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 31. mars 2011, Innlent Umsóknirnar afgreiddar í vor
- Föstudagur, 7. janúar 2011, Innlent Vill fund um ríkisborgararétt barns
- Föstudagur, 10. desember 2010, Innlent „Gróf aðför að tjáningarfrelsinu"
- Miðvikudagur, 12. október 2011, Innlent Ráðherra veiti ríkisborgararétt
- Fimmtudagur, 23. desember 2010, Innlent Enn vegabréfslaus á Indlandi
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































