Flug til Parísar fellur niður

Margir urðu að hafast við á fluvöllum í Bretlandi og …
Margir urðu að hafast við á fluvöllum í Bretlandi og meginlandi Evrópu í nótt. Þessi mynd var tekin á Heathrow flugvelli í Lundúnum. Reuters

Flug Icelandair til Parísar klukkan 7.50 í dag hefur verið fellt niður vegna slæmra veðurskilyrða í frönsku höfuðborginni. Morgunflug til London er hins vegar á eftir áætlun.

Upplýsingar um stöðuna í París verða uppfærðar klukkan 10 en gert er ráð fyrir að Charles de Gaulle-flugvöllurinn opni klukkan 12.

Flugi Iceland Express til Gatwick í London var frestað frá 7 til 11.05 og flugi Icelandair til Heathrow-flugvallar í sömu borg frá 7 til 10.

Miklar truflanir urðu á flugumferð í Evrópu í gær vegna slæmra veðurskilyrða. Aðeins um 20 flugvélar náðu að lenda eða fara frá Heathrow flugvelli í Lundúnum í stað þeirra 1300 sem venjulega fara um völlinn á hverjum degi.  

Reiknað er með að betur gangi í dag en búast má við truflunum á flugumferð á Heathrow næstu daga. Gatwick flugvöllur lokaðist á laugardag en er nú opinn og segja stjórnendur þar að starfsemin sé að komast í eðlilegt horf.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert