Nábítar, böðlar & illir andar unnu sigur
Félagið, sem áður hét Bindir og vír ehf., gerði kaupleigusamning um járnabeygjuvélina í september 2008 og var samningsupphæðin, rúmar 23 milljónir, tengd japönskum jenum og svissneskum frönkum.
Félagið hætti að greiða af samningnum í ágúst árið eftir og í desember rifti Lýsing samningnum og krafðist þess að vélinni yrði skilað. Forsvarsmenn félagsins sendu Lýsingu bréf í ágúst og október á síðasta ári þar sem lögmæti gengistryggingarinnar var véfengt. Hins vegar væri félagið tilbúið að greiða höfuðstól skuldarinnar í íslenskum krónum að viðbættum vöxtum og frádregnum þeim greiðslum sem hafi verið inntar af hendi.
Lýsing svaraði þessum bréfum ekki heldur hélt áfram innheimtu með óbreyttum hætti. Í sumar komst Hæstiréttur síðan að þeirri niðurstöðu, að óheimilt væri að binda greiðslur af lánasamningum við gengi erlendra gjaldmiðla.
Lýsing lagði í ágústlok í sumar fyrir dóminn endurútreikning á samningnum miðað við breyttar forsendur. Þar kom fram, að Nábítar, böðlar og illir andar hefðu í ágúst 2009 verið búnir að ofgreiða 477.769 krónur. Í desember 2009, þegar samningnum var rift, hafi félagið hins vegar verið í 245.567 króna skuld. Höfuðstóll hinn 20. ágúst 2010 er sagður vera 6.671.249 krónur.
Hæstiréttur segir, að þegar litið sé til ofgreiðslu Nábíta, böðla og illra anda, sem leiddi til inneignar félagsins hjá Lýsingu, og þess að ekki lægi fyrir hvort sú inneign ætti að bera vexti eða ekki og hver fjárhæð þeirra ætti að vera, yrði ekki talið að Lýsing hefði sýnt fram á að Nábítar hefðu verið í vanskilum með greiðslur fyrr en á gjalddaga 20. desember 2009, en samkvæmt ákvæði í samningi aðila þyrftu vanskil greiðslna að standa í 15 daga hið skemmsta til þess að riftun væri heimil. Því hafi Lýsing ekki sýnt fram á að því hafi verið heimilt að rifta samningum 22. desember 2009 eins og gert var.
Bloggað um fréttina
-
Arnar Geir Kárason Loksins liggur það skýrt fyrir... -
Guðmundur Ásgeirsson Hamingjuóskir til NBI ehf.
Innlent »
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 15. nóvember 2010, Innlent Nábítar, böðlar & illir andar halda járnabeygjuvélinni
- Mánudagur, 20. desember 2010, Innlent Sigur kom nábítum ekki á óvart
- Föstudagur, 13. maí 2011, Innlent Ekki leitað til EFTA-dómstóls
- Fimmtudagur, 1. desember 2011, Innlent Lýsing tapaði máli
- Fimmtudagur, 1. desember 2011, Innlent Lýsing áfrýjar dómi
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































