Ræningjar enn á bak við lás og slá
Gæsluvarðhald yfir þremur mönnum sem frömdu vopnað rán á Selfossi fyrir rúmri viku rann út í dag. Mennirnir sitja hins vegar enn inni á Litla-Hrauni vegna annarra dóma sem þeir hafa hlotið, en skv. upplýsingum lögreglu voru tveir þeirra á reynslulausn og hafði sá þriðji hlotið dóm í Hæstarétti í síðustu viku.
Mennirnir eru síbrotamenn að sögn lögreglu og höfðu tveir þeirra framið annað rán á Selfossi nokkrum dögum áður en þeir réðust ásamt þriðja manni inn á heimili fólks í bænum 11. desember sl. og ógnuðu því með hnífum.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi var tveimur þeirra veitt reynslulausn nýverið en þá áttu þeir eftir að afplána nokkra mánuði enn vegna fyrri dóma, annar þeirra rúma átta mánuði en hinn rúma sex.
Þremenningarnir voru handteknir um þarsíðustu helgi. Tveir á Selfossi og sá þriðji við Rauðavatn. Lögreglan á Selfossi naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Að sögn lögreglu hefur mikil vinna verið lögð í rannsókn málsins. Meðal annars að gera kröfu um að þeir yrðu úrskurðaðir í gæsluvarðhald og kröfu um að reynslulausn verði dæmd upp hafa lögreglumenn staðið í ströngu að yfirheyra, afla gagna og vinna úr þeim.
Við rannsókn málsins kom fram að tveir mannanna höfðu framið annað rán nokkrum dögum áður. Það átti sér einnig stað á Selfossi. Sá sem var rændur varð svo óttasleginn eftir hótanir mannanna að hann þorði ekki að kæra.
Innlent »
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 20. desember 2010, Innlent Þorði ekki að kæra rán
- Sunnudagur, 12. desember 2010, Innlent Vopnað rán á Selfossi
- Miðvikudagur, 22. desember 2010, Innlent Gert að afplána eftirstöðvar dóms
- Mánudagur, 13. desember 2010, Innlent Í gæsluvarðhaldi til 20.desember
- Laugardagur, 19. febrúar 2011, Innlent Réðust á menn með öxi að vopni
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































