Undirbúa aðgangstakmarkanir
Háskóli Íslands mbl.is/Kristinn Ingvarsson
Háskólaráð Háskóla Íslands hefur ákveðið að undirbúa hugsanlegar aðgangstakmarkanir þar sem mun fleiri sækja nú um nám en ríkisvaldið greiðir fyrir til skólans. Áætlað er að yfir 900 nemendur verði í skólanum á næsta ári án þess að þeim fylgi fjárveiting.
Árið 2011 tekst Háskóli Íslands á við niðurskurð fjárveitinga þriðja árið í röð, þótt nemendum hafi á sama tíma fjölgað verulega. Fjárveitingar til háskólans verða á árinu skornar niður um 475 milljónir króna frá árinu 2010, segir í tilkynningu frá HÍ.
„Til að bregðast við niðurskurði á árinu 2011 leggur háskólaráð megináherslu á að verja kjarnastarfsemi skólans, þ.e. kennslu og rannsóknir, og standa vörð um gæði háskólastarfsins. Á fundi sínum 17. desember s.l. ákvað háskólaráð að undirbúa hugsanlegar aðgangstakmarkanir í Háskóla Íslands vegna þess að mun fleiri sækja nú um nám en ríkisvaldið greiðir fyrir til skólans.
Fjölgun nemenda veldur skólanum verulegum viðbótarkostnaði vegna kennslu, húsnæðis og margvíslegrar þjónustu. Álag hefur aukist gífurlega á starfsfólk og alla aðra þætti skólastarfsins. Við þessu verður að bregðast. Skólinn telur nauðsynlegt að gripið verði til ráða til að tryggja hagsmuni nemenda og gæði námsins.
Frekari aðhaldsaðgerðir munu m.a. fela í sér fækkun starfsfólks og lækkun starfshlutfalls. Kennsluálag eykst hjá kennurum sem ekki hafa með höndum umfangsmikil stjórnunarstörf og gripið verður til enn aukins aðhalds í öllum rekstri og hagræðingar í kennslu til að mæta niðurskurðinum á komandi ári. Mikil áhersla verður lögð á að verja áfram rannsóknir við skólann," segir í tilkynningu frá HÍ.
Vilja hækka skrásetningagjald úr 45 þúsund í 70 þúsund
Háskóli Íslands hefur óskað eftir því að fá heimild til að hækka 45 þúsund króna skrásetningargjald við skólann sem hefur verið óbreytt frá árinu 2005. Miðað við verðlagsforsendur fjárlaga frá 2005 væri gjaldið nú 70.000 kr. Lagabreytingu þarf til að heimila hækkun og hefur beiðni Háskóla Íslands um hækkun verið synjað af hálfu stjórnvalda.
„Háskóli Íslands leggur mikla áherslu á að þessi ákvörðun verði tekin til endurskoðunar, en um leið að skrásetningargjaldið verði lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna."
Innlent »
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 8. júlí 2010, Innlent Samstarf við HÍ um lög- og viðskiptafræði
- Miðvikudagur, 22. desember 2010, Innlent Skráningargjöld mun lægri en skólagjöld
- Miðvikudagur, 15. júní 2011, Innlent Verðlaunuð fyrir framúrskarandi árangur
- Föstudagur, 21. maí 2010, Innlent Ekki hægt að réttlæta kennslu í sömu greinum í mörgum skólum
- Þriðjudagur, 18. janúar 2011, Innlent Orkuskólinn gjaldþrota
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































