Bókasektir skorti lagastoð
Þjóðarbókhlaðan. mbl.is/Gísli Sigurðsson
Konan hélt því fram að bókasafnið hefði skort heimild til að innheimta sektir vegna vanskila því þá heimild hefði ekki verið að finna í lögum nr. 74/1994 um Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn og ekki heldur í reglugerð sem sett var á grundvelli laganna.
Í niðurstöðu umboðsmanns segir að hann leggi þann skilning í ákvæði 2. mgr. 12. gr. laganna að það veitti stjórnvöldum val um það hvort lögð væru viðurlög við brotum notenda á reglum Landsbókasafnsins.
„Færu stjórnvöld hins vegar þá leið að leggja viðurlög við brotum notenda áskildi ákvæðið að grundvöllur viðurlaga við brotum á reglum safnsins kæmi fram í reglugerð sem birt væri í B-deild Stjórnartíðinda, sbr. 3. gr. laga nr. 15/2006, um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað,“ segir í áliti umboðsmanns.
Bendir umboðsmaður á að hvorki í reglugerð nr. 706/1998 né reglugerð nr. 664/2003 væru ákvæði um dagsektir eða viðurlög við brotum notenda á reglum Landsbókasafnsins.
„Í ljósi þess að reglur um sektargreiðslur vegna vanskila hefðu ekki verið settar með þeim hætti sem kveðið væri á um í 2. mgr. 12. gr. laga nr. 71/1994 taldi umboðsmaður að innheimta Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns á sektum vegna vanskila ættu sér ekki fullnægjandi stoð í lögum,“ segir í álitinu.
Umboðsmaður taldi ekki tilefni til að beina sérstökum tilmælum til safnsins um að taka mál konunnar til endurskoðunar en beindi þeim tilmælum til safnsins að framvegis verði tekið mið af þeim sjónarmiðum sem fram koma í áliti umboðsmanns.
Innlent »
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 21. júlí 2011, Innlent Heimildir ráðherra í bága við stjórnarskrá
- Þriðjudagur, 27. september 2011, Innlent Ekki rétt að hafna Heilögum papa
- Fimmtudagur, 1. september 2011, Innlent Telja svör Seðlabankans ófullnægjandi
- Föstudagur, 3. desember 2010, Innlent Ákvæða stjórnsýslulaga ekki gætt
- Þriðjudagur, 5. apríl 2011, Innlent Vill upplýsingar um endurreikning
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































