Fréttaskýring: Lagafrumvörp á hraðferð á Alþingi

Frá afgreiðslu fjárlagafrumvarpsins á Alþingi. stækka

Frá afgreiðslu fjárlagafrumvarpsins á Alþingi.

Eins og áður urðu fjölmörg lagafrumvörp að lögum á Alþingi á síðustu metrunum áður en fundum þingsins var frestað 18. desember sl. fram í miðjan janúar. Um er að ræða aðstæður sem oft hafa þótt vandamál í störfum þingsins á liðnum árum og áratugum.

Sjá má á ferli einstakra lagafrumvarpa á vefsíðu Alþingis að þessu sinni að mörg þeirra hafa hlotið afar skjóta afgreiðslu í þinginu og lítill tími farið í að ræða þau að einhverjum marki í þingsal. Þá hafa tímasetningar þingfunda um ýmis mál þótt nokkuð einkennilegar og dæmi um að fundir hafi þannig t.a.m. hafist mjög seint að kvöldi og staðið fram á nótt.

Frumvörp í flýti

Dæmi um slík mál er frumvarp Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, um vexti, verðtryggingu o.fl., þ.m.t. uppgjör gengistryggðra lána. Frumvarpið var rætt í fyrstu umræðu 17. nóvember í um tvo og hálfan tíma. Þaðan fór það til efnahags- og skattanefndar þingsins til umsagnar og kom til annarrar umræðu í þingsal 17. desember kl. 23.44 og var rætt til klukkan ellefu mínútur yfir eitt. Umræðunni var síðan framhaldið daginn eftir kl. 11.32 til 11.48, sama dag og þingmenn fóru í jólafrí. Þriðja umræða fór loks fram síðar um daginn og tók þrjár mínútur með atkvæðagreiðslu.

Annað dæmi er frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á Stjórnarráði Íslands sem rætt var í fyrstu umræðu daginn eftir í tæpa klukkustund. Önnur umræða fór fram 14. desember sl. í rúman hálftíma og síðan fór atkvæðagreiðsla fram daginn eftir og stóð í mínútu. Þriðja umræðan fór síðan fram 18. desember og stóð samanlagt í fjórar mínútur með atkvæðagreiðslu.

Ekki ásættanlegt

„Þetta helgast m.a. af því að málin koma alltof seint inn til þingsins hvort sem það eru stjórnarfrumvörp eða mál sem þingið tekur upp sjálft, en oftast nær eru þetta nú stjórnarfrumvörpin,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins. Fyrir því geti verið ýmsar ástæður en það sé engu að síður ljóst að þetta séu ekki vönduð vinnubrögð. „Oft er það sem þingmenn samþykkja frumvörp við þessar aðstæður í raun með fyrirvara vegna þess að þeir hafa ekki haft tíma til þess að kynna sér málið.“

Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir að það sé orðið tímabært að breyta þessu fyrirkomulagi. Stundum sé verið að keyra í gegn mál sem þurfa ekki endilega að klárast fyrir áramót. Mikil hætta sé að hennar mati á að gerð séu mistök við þær aðstæður.

Umbætur fyrirhugaðar

Að sögn Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, liggur fyrir frumvarp til breytinga á þingskaparlögum sem ráða eigi bót á þessum vanda að miklu leyti. Með því sé m.a. ætlunin að styrkja eftirlitshlutverk þingsins og rétt þingmanna til upplýsinga frá framkvæmdavaldinu. Þá verði frestir ráðherra til þess að leggja mál fyrir þingið styttir, en það hafi lengi verið vandamál að ráðherrar skili málum seint til þingsins.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »
Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Honda CR-V 2008 Til Sölu
Til sölu Honda Cr-v skráð 10.1.2008 Ekin 90.xxx þ km. Með öllum aukabúnaði nem...
BLACKLION SUMARDEKK
Blacklion sumardekk - pakkatilboð 195/65 R 15 kr. 52.900. 205/55 R 16 kr. 63...
Á besta stað í Borgarnesi
Verslunar og þjónustuhúsnæði til leigu uppl í 4371055 8928685...
Húsnæði með bílskúr óskast í sumar.
Húsnæði með bílskúr óskast í júní til ágúst, í Rvík - Hafnarfj. 3-5 svefnherb., ...
 
Samauglýsing ríkiskaup
Tilboð - útboð
* Nýtt í augl...
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
15096 nátthagi 9 ríkiskaup
Til sölu
Tilboð óskast í f...