Enn vegabréfslaus á Indlandi
Jóel Færseth Einarsson, sem fæddist á Indlandi nýlega, og Alþingi veitti ríkisborgararétt á laugardaginn var hefur ekki enn fengið íslenskt vegabréf. Ljóst er að hann mun verja fyrstu jólunum í Indlandi ásamt foreldrum sínum, þeim Einari Þór Færseth og Helgu Sveinsdóttur.
Foreldrar Jóels biðu spenntir eftir því að forseti Íslands staðfesti lögin um veitingu ríkisborgararéttar með undirskrift sinni. Í forsætisráðuneytinu fengust þær upplýsingar að forsetinn hafi skrifað undir lögin í gær. Þau voru síðan send til birtingar í Stjórnartíðindum.
Í dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu, þar sem Stjórnartíðindi eru til húsa, fengust þær fregnir að málið sé í hefðbundnu ferli líkt og fjöldi laga sem samþykkt og staðfest hafa verið. Staðfesting laganna um veitingu ríkisborgararéttar barst fyrir hádegi í dag. Líklegt var talið að lögin yrðu birt milli jóla og nýárs.
Einar Færseth, faðir Jóels litla, sagði að því miður væri útlit fyrir að þau þyrftu að dvelja í Indlandi yfir jólin.
„Það er komið grænt ljós á allt en mér skilst að forsetinn verði að skrifa undir til að þetta verði allt löglegt,“ sagði Einar. „Við vorum að berjast fyrir því að komast heim því pabbi minn lést á meðan við vorum úti. Hann var jarðsettur í gær. Eftir niðurstöðu Alþingis með drenginn okkar síðastliðinn laugardag vorum við mjög vongóð um að komast heim í jarðarförina hjá föður mínum. Það var ekki svo gott.“
Innlent »
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 29. desember 2010, Innlent Hefur ekki fengið vegabréf
- Föstudagur, 4. febrúar 2011, Innlent Ólýsanleg tilfinning
- Mánudagur, 10. janúar 2011, Innlent Búa við ömurlegar aðstæður á Indlandi
- Laugardagur, 18. desember 2010, Innlent Sonur staðgöngumóður fékk ríkisborgararétt
- Fimmtudagur, 27. janúar 2011, Innlent Málið snýst um forsjá barnsins
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































