Frost mældist 26,2°C í nótt

Mjög kalt var á norðausturhluta landsins í nótt og fór frostið niður í 26,2°C á Hólasandi, 25,2° á Mývatnsöræfum og 23,9° á Brú á Jökuldal, samkvæmt vef Veðurstofunnar. Heldur hefur dregið úr frostinu þegar liðið hefur á morguninn en á Mývatnsöræfum er nú 21,8°C frost.

Mesti kuldi sem mælst hefur síðustu ár á Norðausturlandi í jólamánuðinum var 26,5°C árið 1982. Kuldamet allra tíma á landinu stendur hinsvegar enn síðan frostaveturinn mikla árið 1918, en þá mældist frostið 38°C á Grímsstöðum og Möðrudal. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert