Gekk berserksgang með kylfu
Ungur maður gekk berserskgang með hafnarboltakylfu í Reykjanesbæ í morgun. Hann braut rúður í fjórum bílum og einu íbúðarhúsi áður en lögreglan handtók hann, Fólki sem varð vitni að ofsa mannsins var mjög brugðið. Maðurinn var í annarlegu ástandi og verður yfirheyrður þegar af honum bráir.
Tilkynnt var um mann sem færi hamförum með hafnarboltakylfu í Njarðvík klukkan 7.40 í morgun. Lögreglan í Reykjanesbæ fór þegar á vettvang. Þegar lögreglumenn voru komnir á staðinn mundaði maðurinn kylfuna og braut rúðu í einum bílanna að lögreglunni ásjáandi.
Lögreglan dró þá upp kylfur og piparúða og henti maðurinn þá hafnarboltakylfunni frá sér og var handtekinn. Hann var samt nokkuð æstur og talinn vera í annarlegu ástandi, að sögn lögreglunnar, hugsanlega af völdum fíkniefna.
Einn bílanna sem maðurinn réðist á var að sækja menn til vinnu. Um er að ræða sjö manna fólksbíl. Maðurinn braut tvær hliðarrúður í bílnum og gengu glerbrotin yfir mennina sem sátu í honum. Þeim var talsvert brugðið við árásina, sem vænta má. Mennirnir í bílnum höfðu aldrei séð árásarmanninn áður.
Að sögn lögreglunnar var maðurinn æfur en reiði hans beindist ekki að neinum tilteknum einstaklingum heldur lét hann kylfuna ganga á það sem fyrir varð. Enginn meiddist í atganginum en margir urðu vitni að framferði mannsins.
Lögreglan sagði að fólkinu sem horfði á þetta hafi verið verulega brugðið.
Innlent »
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 12. október 2010, Innlent Braut rúður í Stjórnarráðinu
- Laugardagur, 13. mars 2010, Innlent Braut rúður með berum hnefa
- Fimmtudagur, 14. október 2010, Innlent Skipt um rúður í Stjórnarráðshúsinu
- Laugardagur, 25. júní 2011, Innlent Ógnaði vegfarendum
- Mánudagur, 4. apríl 2011, Innlent Braut rúður í húsum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































