Lilja: „Var vöruð við rætni“

Lilja Mósesdóttir hagfræðingur. stækka

Lilja Mósesdóttir hagfræðingur. Kristinn Ingvarsson

mbl.is baldura@mbl.is - Baldur Arnarson

„Ég hef frétt af ummælum [...] flokksmanna í Samfylkingunni sem voru það rætin að fólk sem tengist mér fjölskylduböndum þótti ástæða til þess að taka upp hanskann fyrir mig,“ segir Lilja Mósesdóttir um persónulegar árásir á hana á netinu. Hún óttast að þingið taki skuldavandann ekki nógu alvarlega.

Máli sínu til stuðnings bendir Lilja á að ríkið þurfi að greiða 73 milljarða króna í vaxtagreiðslur á næsta ári en það jafngildir 8,33 milljónum á klukkustund, allan ársins hring. Miðað við að lítil íbúð í Reykjavík kosti 15 milljónir jafngildir vaxtabyrðin ríflega 13 íbúðum á sólarhring, allt árið.

Sem áður greinir segir Lilja ættingja sína hafa varað sig við rætnum skrifum stjórnarliða en hún vill að öðru leyti ekki ræða meint persónulegt níð um hana í tölvupóstum framar.

Lilja segir umræður á Alþingi fremur snúast um persónur en rök og að þingmenn séu ekki tilbúnir að endurskoða efnahagsstefnuna í ljósi nýrra gagna. Lilja hefur hingað til ekki gefið fréttavef Morgunblaðsins kost á viðtali vegna meints níð um hana á netinu en hún dregur það nú saman í fáum orðum.

Þótti ástæða til að taka upp hanskann fyrir hana

„Ég hef ekki fengið níðpósta sjálf en ég hef frétt af ummælum um mig á bloggsíðum flokksmanna í Samfylkingunni sem voru það rætin að fólk sem tengist mér fjölskylduböndum þótti ástæða til þess að taka upp hanskann fyrir mig. Ég var vöruð við þeirri rætni sem þar birtist.“

- Þú ert menntakona með bakgrunn í fræðasamfélaginu. Kemur það þér á óvart hversu harkan er mikil í þinginu?

„Það sem kemur mér á óvart er að við þingmenn tölum um að læra af hruninu og fara eftir tillögum rannsóknarnefndar Alþingis um að bæta vinnubrögðin og umræðuhefðina en síðan gerist ekkert þegar kemur að framkvæmdinni. Umræðuhefðin í þingflokkunum og á þingfundum gengur enn út á kappræður, eða að sýna fram á að maður geti varið hvað sem er og ráðist á hvað sem er miklu frekar en að takast á málefnalega.

Málefnaleg umræða felst m.a. í því að vera tilbúinn að benda á kosti og galla hvers máls og að viðurkenna galla sem lagfæra þarf áður en mál hlýtur endanlega afgreiðslu. Í þannig tilviki getur maður þurft að taka undir með stjórnarandstöðunni um að ekki gangi að samþykkja tiltekið mál óbreytt.

Ég er búin að vera lengi í háskólasamfélaginu og er þjálfuð í að hlusta á aðra. Mér finnst því erfitt að hugsa meira um að koma vel út í viðtölum en að taka til mín góð rök sem fram koma í umræðunni. Ég reyni að vinsa úr góð rök með og á móti til þess að bæta röksemdafærsluna mína og jafnvel til að skipta um skoðun ef því er að skipta.“

Umræðumenningin fælir frá hæft fólk

- Þú ert dr. í hagfræði. Telurðu að þessi vinnubrögð fæli frá fólk með þinn bakgrunn til að sækjast eftir setu á Alþingi?

„Já. Ég óttast það. Ég hef reyndar verið að velta því fyrir mér undanfarna daga hvort að það hafi verið rétt ákvörðun að fara inn á þing,þar sem mér finnst oft sem að mál sem ég hef haldið á lofti hafi liðið fyrir að það var ég sem lagði þau fram og talaði fyrir þeim. Frumvarpið um fyrningu krafna er kannski besta dæmið.

Ég var fyrsti flutningsmaður þess á síðast þingi og það komst ekki í gegnum allsherjarnefnd, meðal annars vegna andstöðu Samfylkingarinnar. Ögmundur [Jónasson] áttaði sig á því og ákvað sem dómsmálaráðherra að verða sjálfur fyrsti flutningsmaður málsins í þeirri von að málið kæmist frekar í gegnum þingið, sem og varð raunin. Þarna þurfti framkvæmdavaldið að taka upp mál löggjafans til að það kæmist í gegnum þingið. Er ekki eitthvað öfugsnúið við það?“

Persónulegar árásir

Lilja víkur því næst að þeirri ákvörðun hennar, Atla Gíslasonar og Ásmundar Einars Daðasonar, þingmanna VG, að sitja hjá við afgreiðslu fjárlaga.

„Við reyndum að koma fram með málefnalegar skýringar á afstöðu okkar en allir fjölmiðlar og meirihluti stjórnarliða ákveður að hunsa gagnrýni okkar og fara í okkur persónulega. Það var byrjað á mér og ég ásökuð um að geta ekki verið hluti af liðsheild. Það er kannski eitthvað til í því vegna þess að í umhverfinu sem ég kem úr, akademíunni, er þetta ekki spurning um skiptingu í lið heldur að setja fram rökstudda skoðun og reyna að verja hana.

Síðan var úrsögn mín úr vinnuhópi gerð tortryggileg. Ef ég hefði hins vegar setið áfram í hópnum hefði ég verið gagnrýnd fyrir að bregðast félögum mínum í vinnuhópnum. Síðan var farið í félaga mína þá Atla og Ásmund Einar og reynt að gera fjarveru þeirra á haustþinginu tortryggilega. Þetta er stjórnmálamenningin í hnotskurn sem m.a. er fordæmd í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis“

Hættulegur niðurskurður

- Við erum að greiða tugi milljarða í afborganir af vöxtum á ári. Telurðu að niðurskurðurinn sem við erum að fara í muni draga það mikið úr umsvifum í hagkerfinu að það sé hætta á að við lendum í þeirri stöðu að geta ekki fjárfest vegna þess að við séum að setja fé í skuldir?

„Vaxtagreiðslurnar á næsta ári án Icesave verða 73 milljarðar. Útgjöld til menntamála eru um 60 milljarðar. Ég óttast að niðurskurðurinn og vaxtagreiðslur ríkissjóðs geri það að verkum að ríkið festist í neikvæðum vítahring eins og  Bandaríkjamenn upplifðu eftir 1930. Vitahringurinn felst í því að mæta þarf samdráttaráhrifum af niðurskurði síðasta árs með enn meiri niðurskurði árið á eftir.

Við hefðum getað forða okkur frá þessum vítahring með því að flýta skattlagningu séreignasparnað og nota hann til að draga úr atvinnuleysi, övra eftirspurn og greiða niður skuldir. Sú leið er hins vegar ekki í samræmi vð efnahagsætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins frá í nóvember 2008 en samkvæmt henni á að nota jákvæðan frumjöfnuð eða rekstrarafgang ríkissjóðs frá og með næsta ári til að fjármagna vaxtagreiðslur ríkissjóðs.“

Snýst meira um menn en staðreyndir

- Þú ert sérfræðingur í efnahagsmálum og á sviði, þ.e. í skuldavanda ríkja, sem er því miður knýjandi á þessari stundu. Telurðu að þorri þingmanna geri sér grein fyrir því hvaða afleiðingar það getur haft að lenda í þessum vítahring?

„Mér hefur oft fundist, og það kannski miður fyrir mig, að stjórnarandstaðan sé tilbúnari til að hlusta á það sem ég hef að segja en stjórnarliðar. Það veldur mér áhyggjum og undrun. Ég hef því oft velt því fyrir mér hvort að það skipti máli hvaðan áhyggjurnar eða þessi efnahagsumræða kemur. Ég óttast að persónuleg skoðun stjórnarliða á mér móti afstöðu þeirra meira til þess sem ég er að segja en það sem ég segi.“

- Þannig að umræðan snýst ekki um rök eða mótrök heldur um manneskjuna sem er á öndverðum meiði í tilteknu máli?

„Já. Þetta er gamli hugsunarhátturinn. Þetta gengur út á að vera saman í liði og verja sinn málstað án tillits til þess hvort að það komi einhver haldbær mótrök. Sem dæmi má nefna að á meðan að á fjárlagaumræðunni stóð kom í ljós að að hagvöxturinn yrði mun minni á næsta ári en gert var ráð fyrir. Þessar upplýsingar urði hins vegar ekki til þess að við stoppuðum við og veltum fyrir okkur í alvöru, hvort við séum á réttri braut. Í stað þess héldu menn sínu striki og bárust með straumnum,“ segir Lilja Mósesdóttir þingmaður.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
GLÆSILEG KENNSLUBIFREIÐ
Glæsileg kennslubifreið Subaru XV 4WD - árg. 2012. Þ...
FÁÐU RÁÐGJAFA Í HEIMSÓKN - FRÍTT
BETRI REKSTUR. Bókhald og rekstrarráðgjöf. Sími 77 50 200 og 519 7585. www.be...
ALLT MILLI HIMINS OG JARÐAR !!!!!!!!!!
NOTAÐ&NÝTT er ný verslun á Skemmuvegi 6 á bak við BYKO. Mikið úrval af fallegum ...
Kæliklefar. Frystiklefar. Lausfrystar
Kæli- og frystiklefar í öllum stærðum. Skammur afhendingartími. Hægt er að fá k...
 
Þjónustufulltrúi.
Skrifstofustörf
Þjónustufulltrúi Fyr...
Aðstoðarskólastjóri
Leikskólakennsla
Aðstoðarskólastj...
Sýslumaður snæfellinga - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Samkoma
Félagsstarf
Sunnudagur27. maí - hv...