Þórunni fagnað með flugeldum

Þórunn Sveinsdóttir kemur til hafnar í Vestmannaeyjum í morgun. stækka

Þórunn Sveinsdóttir kemur til hafnar í Vestmannaeyjum í morgun. mbl.is/Sigurgeir

„Það var full bryggjan af bílum. Vestmanneyingar fjölmenntu á bryggjuna og tóku á móti nýja skipinu sínu,“ segir Pétur Steingrímsson, varðstjóri lögreglunnar í Vestmanneyjum, um komu skipsins Þórunnar Sveinsdóttur til heimahafnar í dag.

Þórunn er smíðuð í Póllandi en innréttuð í Danmörku.

Pétur segir mikla eftirvæntingu hafa ríkt á meðal heimamanna.

„Útgerð Bergs/Hugins á þrjú togskip og sendi þau út á móti Þórunni. Það var svo tekið á móti skipinu með flugeldum.“

Á sér langa sögu

Fram kemur á bloggsíðu Sigmars Þórs Sveinbjörnssonar að nafn Þórunnar Sveinsdóttur VE 401 eigi sér langa sögu.

„Hver var sú Þórunn Sveinsdóttir sem skipið er skírt eftir og er í dag orðið landsfrægt skipsnafn? Skyggnumst aðeins aftur í tímann.  Hún hét fullu nafni Þórunn Júlía Sveinsdóttir, kölluð Þórunn eða Tóta á Byggðarenda. Hún var fædd á Eyrarbakka 8. júlí árið 1894 og ólst upp hjá foreldrum sínum. Faðir hennar var Sveinn Sveinsson, fæddur í Simbakoti 9. okt. 1863. Hann var sjómaður, lést 1941. Kona hans og móðir Þórunnar var Ingunn Sigurðardóttir frá Rauðafelli í A-Eyjafjöllum, f. 26. jan. 1858, d. 1941.

Þau hjón bjuggu að Ósi á Eyrarbakka með fimm börnum sínum, fjórum stúlkum og einum dreng. Húsið Ós hafði tvær burstir og það var aðeins eitt herbergi í austurburstinni. Í því svaf öll fjölskyldan þannig að þröngt hefur verið í herberginu. Sváfu systurnar tvær og tvær saman í rúmi en bróðir þeirra einn. Húsið Ós stendur enn á Eyrarbakka.    Börn Sveins og Ingunnar voru: Sigurður Ari, Þórunn Júlía, sem hér skipið er skírt eftir, Anna, Sveinbjörg, og Jónína síðar kennd við Sjónarhól.               

Systurnar Þórunn, Sveinbjörg og Jónína fluttust allar til Vestmannaeyja og bjuggu þar mestan hluta ævi sinnar enda var mikill uppgangur í Vestmannaeyjum á þessum tíma, bátar voru vélvæddir, afli jókst og mikið að gera fyrir vinnufúsar hendur.  

Þórunn var 22 ára gömul þegar hún fluttist til Vestmannaeyja árið 1916 ásamt tilvonandi eiginmanni sínum, Matthíasi Gíslasyni sjómanni frá Eyrarbakka. Foreldrar Matthíasar voru Gísli Karelsson, f. 25. nóv. 1868, frá Sjávargötu á Eyrarbakka. Hann drukknaði í sjóslysi á Stokkseyrarsundi ásamt sjö öðrum sjómönnum 2. apríl 1908. Kona hans, Jónína Margrét Þórðardóttir, f. 25. maí 1870, d. 1951, var frá Vatnsholti í Villingaholtshreppi í Árnessýslu.            

Þau Þórunn og Matthías byrjuðu strax að búa eftir að þau komu til Eyja, og þann 10. maí 1917 giftu þau sig. Þau fengu inni á Vestri-Gjábakka sem var frekar lítið hús allt á einni hæð. Það var austarlega á Heimaey og stóð við Bakkastíg. Fyrsta barn þeirra Þórunnar og Matthíasar fæddist  þar 17. des. 1916 og fékk nafnið Ingólfur Símon ( Stundum kenndur við HaförnVE ). Frá Gjábakka fluttust þau Þórunn og Matthías að Vestmannabraut 27, í hús sem hét Garðsauki, Það hús átti Árni Jónsson útgerðarmaður.

Þar fæddist Sveinn 14. ágúst 1918 (Einnig hendur við Haförn VE) og Óskar 22. mars 1921 ( Óskar á Leó VE. stofnaði útgerðina Ós ehf  sem á Þórunni Sveinsdóttir VE ) . Frá Garðsauka flytjast þau hjón að Vallarnesi og síðan á Hof við Urðaveg. Á þessum árum eignuðust þau Gísla, fæddur 17. apríl 1925, en hann lést í bílslysi í Reykjavík aðeins 8 ára gamall. Matthildur Þórunn fæddist 13. júní 1926. Árið1928 kaupa þau Byggðarenda minnsta húsið við Brekastíg 15a.

Þröngt var um þau í því húsi. Það var gengið inn í það að norðan, inn í litla forstofu eða gang og beint inn af útidyrunum var herbergi þar sem öll fimm börnin sváfu og lítið herbergi inn af því þar sem þau hjón sváfu. Einnig var eldhús, meira var plássið ekki. Vaskahús var í skúr bak við húsið. Eins og sést á þessum búferlaflutningum hefur verið erfitt með húsnæði í Eyjum á þessum árum,“ skrifar Sigmar.

Þórunn við bryggju í Danmörku.

Þórunn við bryggju í Danmörku. Ljósmynd/Sigurjón Óskarsson

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu Volvo V70, árgerð 2006, ek. 83þ
Til sölu Volvo V70, árgerð 2006,ekinn 83 þús km .Innfluttur nýr frá Brimborg. Ál...
Chesterfield sófasett til sölu!
Vel með farið 10 ára gamalt Chesterfield sófasett 3+1+1 til sölu. Uppl í síma 86...
Veiðin - Ormar til sölu
Nú er maðkur í mysunni, vorið komið og veiðin að hefjast! Úrvals silungsmaðk...
4 stólar til sölu - mjög gott verð !
Þessir flottu stólar eru til sölu aðeins 4.000 kr. stk. Eru eins og nýjir (mjög ...
 
Starfsmaður í mötuneyti
Önnur störf
Starfsmaður í mötuneyti Morgunblaðið ...
Bl atvinnuaugl
Önnur störf
HYUNDAI FLYTUR Í NÝJA OG GLÆSILEGA FRAMT...
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....