Þorparinn Eyjafjallajökull

Eyjafjallajökull í ham.
Eyjafjallajökull í ham. mbl.is/RAX

Eyjafjallajökull er á lista breska dagblaðsins Daily Telegraph yfir 10 þorpara ársins 2010, en auk eldfjallsins er leikarinn Mel Gibson, vuvuzela-lúðrarnir og pakistanska krikketlandsliðið á listanum.

Segir blaðið að gosið hafi komið fjallinu á kortið, og það sé nú orðið alræmt. Þá rifjar það upp hvernig eldgosið hafi lamað flugsamgöngur í Evrópu.

Umfjöllun Daily Telegraph.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert