Erill hjá lögreglu á Selfossi

mbl.is/Júlíus

Nokkur erill var hjá lögreglunni á Selfossi í nótt. Meðal annars var maður skallaður í andlitið fyrir utan skemmtistað á Selfossi og var árásarmaðurinn handtekinn. Verður hann yfirheyrður í dag. Þá var dyravörður sleginn á skemmtistaðnum Hvíta húsinu á Selfossi.

Var nokkur erill vegna ölvunar, útköll vegna hávaða, auk þess sem lögregla hafði afskipti af ósætti milli fólks í heimahúsi á Flúðum.

Einnig varð vegfarandi fyrir því óláni að aka á hross við Hrepphóla, á Skeiðaveginum, um klukkan hálfsex í morgun. Nauðsynlegt reyndist að aflífa hrossið á staðnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert