Innlent
| Morgunblaðið
| 27.12.2010
| 7:10
Flugeldaverðið stendur í stað
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is
Verð á flugeldum hjá björgunarsveitunum fyrir þessi áramót verður á svipuðu róli og verið hefur sl. tvö ár. Milli áranna 2007 og 2008 hækkaði verðið hins vegar mikið, vegna áhrifa af gengisfalli krónunnar og sömuleiðis hækkaði innkaupsverð frá verksmiðjum umtalsvert. Björgunarsveitirnar eru jafnan umsvifamestar í flugeldasölunni sem er þeim jafnframt mikilvæg fjáröflunarleið.
Fólk stendur með okkur
„Við rennum vitaskuld blint í sjóinn með hvernig salan verður. Hins vegar finnum við að fólk stendur með okkur sem aldrei fyrr og ímyndarmælingar Capacent eru félaginu hagfelldar og fólk sá mikilvægi starfs okkar í aðgerðum vegna eldgossins undir Eyjafjallajökli sem voru mjög umfangsmiklar. Þá vakti leiðangurinn til Haítí mikla athygli,“ segir Ólöf Snæhólm Baldursdóttir upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, í samtali við Morgunblaðið.Tugir flugeldasala
Veðurspár sýna að á gamlárskvöld verði milt veður með suðlægum áttum. Hláka verður um mest allt land en þarf þó ekki að fylgja úrkoma, segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur sem telur óljóst enn sem komið er hvernig flugeldaveðrið verði.Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu gaf um það bil sextíu aðilum leyfi til flugeldasölu fyrir síðustu áramót. Flest leyfanna voru gefin út til björgunarsveita, en einnig hafa karlaklúbbar, íþróttafélög og jafnvel einkaaðilar aflað fjár til starfsemi sinnar með flugeldum.
Hvað kosta flugeldarnir?- Trýtill er minnsta einingin í flugeldasölunni og kostar í ár 3.500 kr. Tralli er fjölskyldupakki sem kostar 6.900 og hækkar ekki í verði milli ára frekar en Trausti, vel útilátinn og vinsæll pakki.
- Trölli er ríflegasti flugeldaskammturinn og kostar 21.900 kr. Þá bjóðast nú sex skotkökur í kassa sem kostar 17.000 kr.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
Innlent »
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 27. desember 2010, Innlent „Staðið með okkur“
- Mánudagur, 4. janúar 2010, Innlent Flugeldasala gekk misvel
- Mánudagur, 28. desember 2009, Innlent Sprenging varð í flugeldaverði
- Sunnudagur, 27. desember 2009, Innlent Björgunarsveitir bjartsýnar á flugeldasöluna
- Fimmtudagur, 5. janúar 2012, Innlent Eldsneytisverð rýkur upp
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
Zimmermann píanó
Til sölu vel meðfarið Zimmermann píanó. Verð 125.000.
Upplýsingar í síma 84589...
Hyundai Tuscon, 750.000 afsláttur
Til sölu gott eintak 06/2008 silfurgrár bensínbíll, vél 1975cc, fjórhjóladrifinn...
Húsnæði undir veitingarekstur til leigu.
Tilbúinn veitingastaður/bar til leigu á Laugavegi 55, laust strax.
Um er að r...
Touareg árg.2005
VW v:2,29 mkr, glæsilegur bíll v8 bein innspýtingu sjálfsk. e105 þkm. ný dekk, S...




































