Röskun á flugi vegna veðurs
Röskun hefur orðið á flugáætlun Iceland Express (IE) og Icelandair vegna óveðurs í Bandaríkjunum, en þar lokuðust flugvellir í gær vegna kafaldsbyls. Skv. upplýsingum frá IE er vonast til að vél sem átti að koma frá New York í morgun lendi í Keflavík kl. 18 í kvöld.
Icelandair sendi út tvær aukavélar til Boston og New York síðdegis í gær og þær sneru til baka um níuleytið í morgun. Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir að einhverjar tafir hafi orðið á Evrópufluginu vegna þessa. Annars líti dagurinn vel út.
Um tveggja tíma seinkun varð á vélum Icelandair til Stokkhólms og Óslóar í morgun. Þá seinkar flugi til Kaupmannahafnar einnig um tvo tíma og á vélin að hefja sig til flugs kl. 19.
Kristín Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Iceland Express, segir að vélin sem fór til Bandaríkjanna í gær hafi ekki getað lent Newark vegna veðurs og því hafi henni verið snúið JFK-vallarins í New York. Samkvæmt flugáætlun átti vélin að lenda í Keflavík kl. sex í morgun en vonast er til að hún lendi kl. 18 í kvöld með um 200 farþega.
„Þetta virðist vera að opnast og við vonumst til að geta komist í loftið fljótlega,“ segir Kristín í samtali við mbl.is. Menn reyni allt sem þeir geti og að það sé leitt að farþegarnir skuli tefjast. Hins vegar sé lítið hægt að gera þegar veðrið sé svona.
Þetta hefur raskað flugi IE til Evrópu, en vélar sem áttu að fara til London og Kaupmannahafnar fóru ekki í loftið kl. sjö líkt og til stóð. Hefur fluginu til London verið seinkað til 16:40 og fluginu til Kaupmannahafnar seinkað til til 19.
Þá er áætlað að vél IE frá Berlín lendi í Keflavík kl. 18:20 í kvöld, en hún átti að lenda kl. sex í morgun.
Bloggað um fréttina
-
Ómar Ragnarsson "Kafaldsbylur" - þetta líkar mér. -
Halldór Sigurðsson Veður breytist fljótt á Íslandi - myndband
Innlent »
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 23. maí 2011, Innlent Völlurinn opnast klukkan 18
- Föstudagur, 23. apríl 2010, Innlent Aukinn viðbúnaður á Akureyri
- Fimmtudagur, 20. október 2011, Innlent Ellefu tíma seinkun á flugi
- Þriðjudagur, 24. maí 2011, Innlent Flogið eftir hádegi
- Miðvikudagur, 20. apríl 2011, Innlent Iceland Express fjölgar ferðum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































