Davíð: Lagði ekki til þjóðstjórn

Stjórnarráð Íslands. stækka

Stjórnarráð Íslands. mbl.is/Jim Smart

Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi seðlabankastjóri og forsætisráðherra, segir það ekki rétt að hann hafi lagt til að hér yrði mynduð þjóðstjórn líkt og haldið hafi verið fram. Þetta er meðal þess sem kemur fram í viðtali við Viðskiptablaðið í dag. 

Aðspurður nánar um hvað hafi farið fram á frægum fundi með ríkisstjórninni í lok september 2008, og meinta tillögu hans um þjóðstjórn, segir Davíð að ráðherrar Samfylkingarinnar hefðu í kjölfarið orðið „eitthvað taugaveiklaðir" eins og hann orðar það, og þeir haldi því enn fram að hann hafi komið á fundinn til að leggja það til að mynduð yrði þjóðstjórn.  Svo hafi þó ekki verið.

„Ég var að vona að þetta fólk myndi átta sig á því hvað væri að fara að gerast en það virðist ekki gera það," segir Davíð í viðtali við Viðskiptablaðið.

„Ég sagði í umræðum á þessum fundi að ég hefði alltaf verið á móti þjóðstjórnum, því ég hefði alltaf verið á móti þjóðstjórnum, því í lýðræðisríkjum þyrfti alltaf að vera andstaða og gagnrýnisrödd þannig að fólkið í landinu gæti valið milli tveggja lausna. Ég sagði þó að nú væri ástandið svo alvarlegt, að ef einhvern tíma ætti að mynda þjóðstjórn, þá væri það við þessar aðstæður. Þetta var sagt  til að sýna fram á hve alvarlegt ástandið væri orðið. Ég lagði það þó ekki til, þó Þorgerður Katrín og Össur hafi farið úr límingunum og farið að hreyta í mig ónotum eftir fundinn. Síðan hefur auðvitað komið í ljós að Þorgerður Katrín átti mikilla hagsmuna að gæta í bankakerfinu og Össur er auðvitað bara eins og hann er."

Segir Gísli Freyr Valdórsson, blaðamaður Viðskiptablaðsins að haft hafi verið eftir þáverandi ráðherrum Samfylkingarinnar að „tillaga“ Davíðs hafi falið það í sér að hann ætlaði sér sjálfur að verða forsætisráðherra í umræddri þjóðstjórn, Þegar blaðamaður spyr um þetta segir Davíð það þó af og frá.

„Þessir menn tala eins og kjánar enda er þjóðstjórn stjórn þingsins. Ef einhver maður hefði verið að velta fyrir sér hvort hann gæti nú komist aftur í ríkisstjórn, eins og þessi karl var sakaður um svo fráleitt sem það er," segir Davíð og bendir á sjálfan sig, „þá hefði viðkomandi lagt til utanþingsstjórn. Það er einungis þannig sem utanaðkomandi aðilar koma að ríkisstjórn. Þjóðstjórn felur í sér að allir þingflokkar mynda stjórn saman og það væri þá eðlilegt að formaður stærsta flokksins yrði forsætisráðherra eða annar úr þinghópnum sem samstaða næðist um."

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
PORSCHE CAYENNE Sport 2004
Eldsneyti / VélBensín 8 strokkar4.500 cc.351 hö. 2.305 kg.Drif / Stýrisbúnaður...
ALLT MILLI HIMINS OG JARÐAR !!!!!!!!!!
NOTAÐ&NÝTT er ný verslun á Skemmuvegi 6 á bak við BYKO. Mikið úrval af fallegum ...
FÁÐU RÁÐGJAFA Í HEIMSÓKN - FRÍTT
BETRI REKSTUR, bókhald og rekstrarráðgjöf sími 77 50 200 og 519 7585 www.betrir...
Varahlutir í MITSUBISHI PAJERO o.fl.
Eigum notaða varahluti í flesta Mitsubishi bíla svo sem Pajero, L200, Lancer, Ga...
 
Administrative assistant
Sérfræðistörf
Icelandic Institute for Intelligent Mac...
Jobbtrygghet
Augl-/almannatengsl
JOBBTRYGGHET? UTFORDRENDE JOBB? ...
Styrkir til eflingar starfsmenntunar
Tilkynningar
Styrkir til eflingar starfsmennt...
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Blönduskóli Aðstoðarskólastjóri Staða...