Lilja maður ársins á Útvarpi Sögu

Lilja Mósesdóttir.
Lilja Mósesdóttir.

Hlustendur Útvarps Sögu völdu Lilju Mósesdóttur alþingismann Vinstri grænna mann ársins 2010.

Í tilkynningu frá Sögu segir, að fram hafi komið í valinu að hlustendur Útvarps Sögu kunnu að meta að Lilja fylgdi eigin sannfæringu í störfum sínum á Alþingi og léti ekki undan svokölluðu foringjaræði.  

Val fimm efstu manna í kjörinu var eftirfarandi:

  1. Lilja Mósesdóttir, alþingismaður
  2. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands
  3. Þórður Guðnason, björgunarsveitarmaður
  4. Jón Gnarr, borgarstjóri
  5. Vigdís Hauksdóttir, alþingismaður
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert