Fréttaskýring: Bensínverðið hækkar í áföngum

stækka

Friðrik Tryggvason

Morgunblaðið Helgi Bjarnason helgi@mbl.is

Verð á bensíni og dísilolíu mun hækka strax á nýársnótt vegna hækkunar á bensínsköttum ríkisins. Hluti hækkunarinnar kemur fram þá en gjöldin koma síðan að fullu fram með innkaupum á nýjum förmum. Ef innkaupsverð breytist ekki á þessum tíma eða aðrar forsendur hækkar bensínlítrinn um 4,50 kr. og kostar 212 krónur í lok janúar eða í febrúar.

Samþykkt hefur verið að hækka vörugjöld og kolefnisgjald af bensíni og olíugjald og kolefnisgjald af dísilolíu um 3,60 kr. á lítrann sem svarar til 4,50 króna þegar virðisaukaskatti hefur verið bætt við.

Sérstakt vörugjald af bensíni og olíugjald af dísilolíu miðast við hvern seldan lítra og hækkar því strax um áramót. Algengt verð á bensíni hjá stóru olíufélögunum er nú 207,70 kr. Verðið fer í um 209,50 krónur um áramót og rúmar 212 kónur þegar kolefnisgjald og almennt vörugjald bætast við verðið við tollafgreiðslu á nýjum förmum.

Birgðastaðan getur verið mismunandi á milli fyrirtækja. Hjá N1 fengust þær upplýsingar að eins mánaðar birgðir væru til og því mætti búast við að áhrif gjaldabreytinga ríkisins yrðu að fullu komnar fram í lok janúar eða byrjun febrúar.

Þessar hækkanir þýða að kostnaður við rekstur á fjölskyldubíl í meðalnotkun hækkar um 9 til 10 þúsund krónur á ári, samkvæmt upplýsingum FÍB.

Sömu sögu er að segja af dísilolíu. Lítrinn fer væntanlega úr 208,70 kr. í rúmlega 211 um áramót og í rúmlega 213 krónur í janúar eða febrúar.

Bjartsýnn á verðþróun

Verð á bensíni er viðkvæmt fyrir breytingum á gengi og heimsmarkaði. Margt getur því breyst á þessum tíma. Breyttar forsendur geta vitaskuld leitt til þess að verðið hækki minna eða meira.

Bensínverð hefur oft hækkað eftir áramót vegna kulda á stærstu markaðssvæðunum vestanhafs og austan. Magnús Ásgeirsson, innkaupastjóri eldsneytis hjá N1, er bjartsýnn á þróun heimsmarkaðsverðs á næstunni. Hann telur að mestu hækkanirnar séu komnar fram, vegna veðurfarsins í Evrópu og Bandaríkjunum. „Ég held að janúarhrollurinn sé kominn,“ segir Magnús.

Þriðjungur víntegunda hækkar

Þrátt fyrir að áfengisgjald hækki um 1-4% um áramót og ætti að öðru jöfnu að leiða til 2% hækkunar útsöluverðs að meðaltali, breytist verð á áfengi lítið í upphafi. Tóbakið mun væntanlega hækka mun meira.

Áfengisgjald á léttu víni og bjór hækkar um 4%. Ef ekkert annað breytist hefur það þau áhrif að bjór sem kostar nú 300 krónur fer í 307 krónur og rauðvínsflaska sem kostar 1900 kr. fer í 1937 kr. Áfengisgjald á sterku áfengi hækkar minna, eða um 1%, kannski vegna þess hvað mikið hefur dregið úr sölu vegna hækkana áður. Það leiðir til þess að vodkaflaska sem nú kostar 4700 kr. fer í 4730 kr.

ÁTVR kaupir áfengið með áfengisgjöldum og gaf birgjum kost á að hækka verðið um áramót vegna hækkunar á áfengisgjöldum. Aðeins þriðjungur nýtti það. Birgjar taka hækkunina á sig eða hugsa sér að hækka síðar.

Tóbaksgjald hækkar um 7%. Við það hækkar heildsöluverð ÁTVR um 4,5 til 5%. Smásöluálagning er frjáls og verð því breytilegt. Búast má við því að sígarettupakki sem nú kostar 900 krónur fari yfir 940 krónur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Eins og fram hefur komið á mbl.is hafa verið truflanir á netsambandi í gegnum netkerfi Símans í morgun sem virðast hafa byrjað laust fyrir klukkan níu. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Toyota Yaris árg.2005
Til sölu, ekinn aðeins 56þ. sjálfsk., filmur, spoiler, álfelgur, sumardekk, bíll...
Sumarhúsalóðir í Kjósinni
Til sölu sumarhúsalóðir í landi Möðruvalla 1 (Norðurnes) í Kjós. Nánari upplýsin...
Barnabílstóll Maxi Cosi
Tveggja ára gamall vel með farinn Maxi Cosi barnabílstóll. Selst á 10.000 kr. Áh...
GARÐSKÁLI GEYMSLUR GESTAHÚS
Garðskáli - geymslur - gestahús Vönduð hús ú...
 
Tækniskólinn - atvinnuauglýsing
Önnur störf
Framúrskarandi kennarar óskast í ...
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...