RÚV útnefnir Svavar fréttamann ársins

Svavar Halldórsson fréttamaður.
Svavar Halldórsson fréttamaður.

Fréttastofa Ríkisútvarpsins valdi í dag Svavar Halldórsson fréttamann ársins 2010.

Fram kemur á vef Ríkisútvarpsins, að Óðinn Jónsson, fréttastjóri, hafi þakkað Svavari á fundi í hádeginu fyrir mikil og góð störf á árinu og um leið var hann hvattur til frekari dáða.

Segir á vefnum að Svavar hafi vakið verðskuldaða athygli fyrir fréttir sínar og ekki farið varhluta af harkalegum viðbrögðum þeirra sem hann hefur fjallað um.

Bæði Pálmi Haraldsson og Jón Ásgeir Jóhannesson hafa stefnt Svavari vegna frétta sem hann hefur flutt af viðskiptum þeirra. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert