800 fengu matvælaaðstoð

Biðröð við húsakynni Fjölskylduhjálpar Íslands. stækka

Biðröð við húsakynni Fjölskylduhjálpar Íslands. Ernir Eyjólfsson

Áætlað er að um 800 einstaklingar hafi fengið matarúthlutun hjá hjálparsamtökum þann 24. nóvember á síðasta ári. Þetta er niðurstaða könnunar sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir velferðarráðuneytið.

Fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu að markmiðið með könnuninni hafi verið að afla upplýsinga um aðstæður þeirra sem leita þessarar hjálpar og fá mynd af lýðfræðilegri samsetningu hópsins. Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, segir að enginn þurfi að efast um að fólkið sem leitar þessarar aðstoðar býr við fátækt og er í brýnni þörf fyrir aðstoð.

„Ríki, sveitarfélög og aðilar vinnumarkaðarins verða að gera betur til að bæta stöðu þessa hóps og almennar aðgerðir í því skyni eru nauðsynlegar. Hjálparsamtök eiga að vera þrautarlending sem fólk þarf í versta falli að leita til í eitt eða tvö skipti vegna sérstakra aðstæðna en það er ótækt að þau þurfi að vera fastur liður í framfærslu fólks. Nú líður að því að kynntir verða útreikningar og tillögur um framfærsluviðmið og lágmarksviðmið til framfærslu sem ég bind miklar vonir við að muni hjálpa okkur við að rétta stöðu þess hóps sem hefur augljóslega of lítið handa á milli,“ segir Guðbjartur í tilkynningunni.

Hann segir einnig nauðsynlegt að finna hjálparstarfinu annað form og skipulag svo fólk þurfi ekki að standa í biðröðum eftir mat.

Í könnuninni var rætt við fólk sem leitaði til Fjölskylduhjálpar Íslands og Hjálparstarfs kirkjunnar eftir matarúthlutun 24. nóvember síðastliðinn. Mæðrastyrksnefnd lagðist gegn því að Félagsvísindastofnun legði spurningalista fyrir þá sem þangað leituðu. Því var ekki rætt við það fólk en talinn fjöldi karla og kvenna sem þangað leitaði umræddan dag og áætlað um aldur þeirra.

Hlutfall svarenda hjá Fjölskylduhjálpinni og Hjálparstarfi kirkjunnar var 72–74% en aðrir neituðu að svara. Spurt var um kyn, aldur, ríkisfang, búsetu, hjúskaparstöðu, barnafjölda og fjölda í heimili, búsetuform, menntun, stöðu á vinnumarkaði, tekjur, bætur og lífeyri. Einnig var spurt um helstu ástæðu þess að viðkomandi leitaði til hjálparsamtaka og hvort hann ætlaði að leita til fleiri hjálparsamtaka þennan dag.

Helstu niðurstöður voru þessar:

  • Ætla má að hjálparsamtökin þrjú hafi úthlutað mat til rúmlega 1000 einstaklinga þann 24. nóvember 2010. Af þeim eru einhverjir tví- eða þrítaldir því hluti fólksins kvaðst leita á fleiri en einn stað. Því má áætla að um 800 einstaklingar hafi fengið matarúthlutun umræddan dag.
  • Mun fleiri konur en karlar leituðu sér aðstoðar, eða rúm 57% á móti rúmum 42% karla. Hópurinn sem leitaði sér aðstoðar var á breiðu aldursbili, en um níu af hverjum tíu voru á aldrinum 20–60 ára. Flestir voru á aldrinum 30–50 ára.
  • Um 82% þeirra sem leituðu sér aðstoðar voru annaðhvort atvinnulausir (44%) eða öryrkjar (38%). Um 7% hópsins voru í launaðri vinnu og um 4% á eftirlaunum.
  • Ríflega tveir af hverjum fimm svarendum sögðust hafa haft undir 150.000 krónur í heildartekjur fyrir skatt, mánuðinn fyrir könnunina, um þriðjungur á bilinu 150.000–199.000 krónur en tæpur fjórðungur 200.000 krónur eða meira í heildartekjur í liðnum mánuði.
  • Um þrír af hverjum fjórum sem rætt var við bjó í leiguhúsnæði. Helmingur þeirra leigði á almennum markaði (49%) og um fjórðungur í félagslega húsnæðiskerfinu eða í íbúð á vegum Öryrkjabandalagsins. Um fimmtungur bjó í eigin húsnæði (19%).
  • Flestir sem fengu matarúthlutun þennan dag voru einstæðir foreldrar (29%) og fólk sem bjó eitt (24%), en um 23% búa með maka og börnum. Að baki þeim sem leituðu mataraðstoðar hjá Hjálparstofnun kirkjunnar og Fjölskylduhjálp Íslands þennan dag voru um eða yfir 300 börn yngri en 18 ára. Að því gefnu að bakgrunnur þeirra sem leita til Mæðrastyrksnefndar sé svipaður má gera ráð fyrir að heildarfjöldi barna sem aðstoðin náði til umræddan dag sé allt að 800.
  • Um þriðjungur hópsins sem rætt var við var með erlent ríkisfang og af þeim voru þrír af hverjum fjórum pólskir.
  • Um 47% hópsins höfðu ekki lokið formlegu námi umfram grunnskóla en um 44% höfðu lokið framhaldsskólanámi. Um 9% svarenda höfðu lokið háskólaprófi.
  • Þegar spurt var um helstu ástæður þess að fólk leitaði til hjálparsamtaka eftir mat nefndu flestir lágar tekjur (72%) en einnig nefndu margir atvinnuleysi (42%), skuldavanda (41%) eða veikindi og heilsuleysi (30%).
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Eins og fram hefur komið á mbl.is hafa verið truflanir á netsambandi í gegnum netkerfi Símans í morgun sem virðast hafa byrjað laust fyrir klukkan níu. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Toyota Yaris árg.2005
Til sölu, ekinn aðeins 56þ. sjálfsk., filmur, spoiler, álfelgur, sumardekk, bíll...
Sumarhúsalóðir í Kjósinni
Til sölu sumarhúsalóðir í landi Möðruvalla 1 (Norðurnes) í Kjós. Nánari upplýsin...
Barnabílstóll Maxi Cosi
Tveggja ára gamall vel með farinn Maxi Cosi barnabílstóll. Selst á 10.000 kr. Áh...
GARÐSKÁLI GEYMSLUR GESTAHÚS
Garðskáli - geymslur - gestahús Vönduð hús ú...
 
Samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Ken Lock...
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...
Samtök atvinnulífsins
Önnur störf
LÖGFRÆÐINGUR Samtök atvinnulífsins lei...
Leikskólastjóri við sunnufold
Stjórnunarstörf
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...