Andlát: Jón Laxdal Arnalds
Jón Laxdal Arnalds, fyrrverandi dómari og ráðuneytisstjóri, andaðist á heimili sínu s.l. sunnudag.
Hann var fæddur í Reykjavík 28. janúar 1935, sonur hjónanna, Guðrúnar Jónsdóttur Laxdal, kaupkonu í Reykjavík, og Sigurðar Arnalds, útgefanda og stórkaupmanns. Hann lætur eftir sig eiginkonu, Ellen Júlíusdóttur. Hann var áður kvæntur Sigríði Eyþórsdóttur og eru börn þeirra Eyþór og Bergljót.
Að loknu lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1961 stundaði Jón framhaldsnám í hugverka- og auðkennarétti í London og kynnti sér einnig þetta sérsvið lögfræðinnar í Þýskalandi og Danmörku. Jón starfaði sem héraðsdómslögmaður fyrst eftir framhaldsnámið og varð síðar hæstaréttarlögmaður en réðst til starfa í stjórnarráðinu 1964, fyrst sem fulltrúi og deildarstjóri en gegndi síðan starfi ráðuneytisstjóra í sjávarútvegsráðuneytinu frá stofnun þess árið 1970 til 1985.
Jón átti sæti í fjölmörgum opinberum nefndum og stjórnum en einnig var hann fulltrúi Íslands í ýmsum alþjóðlegum nefndum um fiskveiðimál á þeim árum þegar Íslendingar færðu út landhelgina úr 12 mílum í 200 mílur og má sem dæmi nefna að hann var fulltrúi Íslands í íslensk-norskri fiskveiðinefnd um framkvæmd á stjórnun fiskveiða á Jan Mayen svæðinu 1980 til 1985 og form. sendinefndar Íslands á aðalfundum Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar 1972 til 1985 og forseti nefndarinnar í nokkur ár. Hann átti einnig sæti í sendinefnd Íslands á hafréttarráðstefnum SÞ 1974 til 1982.
Eftir að Jón lauk störfum í sjávarútvegsráðuneytinu varð hann borgardómari. Hann var einnig dósent, stundakennari og prófdómari við lagadeild Háskóla Íslands um langt skeið og eftir hann liggja ýmis fræðirit og greinar um einkaleyfarétt og helstu meginreglur vörumerkjaréttar. Hann átti og rak einkaleyfaskrifstofuna Faktor frá 1969-2006.
Jón sat um skeið í stjórn Verðbréfaþings Íslands hf. og Kauphallarinnar hf. Hann var alllengi forseti Guðspekifélags Íslands, svo og aðalræðismaður Indlands.
Innlent »
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 1. mars 2010, Innlent Andlát: Þorsteinn Geirsson
- Miðvikudagur, 3. mars 2010, Innlent Jón Hnefill látinn
- Mánudagur, 5. apríl 2010, Innlent Jón Böðvarsson er látinn
- Laugardagur, 14. maí 2011, Innlent Andlát: Jón Kr. Sólnes
- Fimmtudagur, 28. janúar 2010, Innlent Peningagjöf í rannsóknarsjóð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































