Ástand lúðustofnsins mjög bágborið

halldor@bb.is

Ástand lúðustofnsins hér við land er mjög bágborið. Þá eru rannsóknir á stofninum ófullnægjandi. Þetta kemur fram í greinargerð sem Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur látið taka saman  um lúðuveiðar, ástand stofnsins við Ísland og hugsanlegar aðgerðir til verndunar á stofninum.

Starfshópur ráðherra var skipaður starfsmönnum ráðuneytisins, Fiskistofu og Hafrannsóknarstofnunarinnar. Hópurinn kom saman fimm sinnum og fundaði meðal annars með hagsmunaaðilum.

Í greinargerðinni kemur fram að ástand lúðustofnsins hér við land er mjög bágborið. Engin aflamarksstýring er á lúðuveiðum en meirihluti lúðuafla berst sem meðafli. Auk þess eru stundaðar beinar línuveiðar á lúðu með svokallaðri haukalóð og hefur sú veiði farið vaxandi á undanförnum árum.

Hafrannsóknarstofnunin hefur um árabil lagt áherslu á að stöðva beinar lúðuveiðar. Starfshópurinn tekur undir þá tillögu stofnunarinnar en veltir einnig upp öðrum möguleikum til að takmarka sókn í stofninn.

Engar ákvarðanir liggja enn fyrir og er málið nú í höndum ráðherra.

Greinargerð starfshópsins

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert