Siðareglur ekki brotnar
Björgólfur Thor Björgólfsson. mbl.is/Ásdís
Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands hefur komist að þeirri niðurstöðu, að fréttastofa Ríkisútvarpsins hafi ekki brotið siðareglur blaðamanna í umfjöllun um ásakanir á hendur fyrrverandi stjórnendum Landsbankans um markaðsmisnotkun þeirra.
Um var að ræða pistil, sem Sigrún Davíðsdóttir flutti og byggði á skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og lánayfirliti Kaupþings frá september 2008. Kom þar fram, að stjórnendur landsbankans hafi ekki gert grein fyrir því með skýrum hætti, gagnvart verðbréfamarkaði, að svokölluð aflandsfélög, sem skráð voru hluthafar í bankanum og versluðu með hlutabréf í honum, hafi raunverulega verið í eigu bankans eða tengdra aðila.
Eitt þessara félaga, Empennage, var í pistlinum tengt nafni Björgólfs Thors Björgólfssonar með þeim orðum að það væri „samslungið Samson eignarhaldsfélagi í eigu feðganna Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors.
Björgólfur Thor kærði umfjöllunina til siðanefndar blaðamanna og taldi að Sigrún hefði dregið rangar ályktanir af umfjöllun í rannsóknarskýrslunni. Sigrún gekk þá eftir því hjá höfundum rannsóknarskýrslunnar hver réttur skilningur á umfjölluninni væri og fékk þá staðfest, að umfjöllunin ætti við um hluthafafund í Landsbankanum en ekki í Empennage.
Í kjölfarið birtist athugasemd á vef RÚV samþykktum Landsbankans hefði verið breytt, ekki Empennage.
„Megininntak pistilsins er um hvernig átta svokölluð „aflandsfélög" Landsbankans voru notuð til meintrar markaðsmisnotkunar og að kerfið sem Landsbankinn notað hafi bæði verið flókið og ógagnsætt. Siðanefnd telur greindar heimildir fullnægjandi til umfjöllunar um málefnið og þar með um kæranda. Hann verður að una því að um hann sé fjallað i þessu samhengi. Siðanefnd telur að hinn kærði fréttamaður hafi vandað upplýsingaöflun sína, úrvinnslu og framsetningu, þrátt fyrir að í ljós hafi komið að hann hafi ranglega talið að í skýrslu rannsóknarnefndarinnar hafi verið fjallað um hækkun hlutafjár í Empennage þegar átt var við hækkun hlutafjár í Landsbankanum. Þetta atriði, sem reyndar var leiðrétt í vefútgáfu, getur eitt og sér ekki talist vera brot á siðareglum, enda ekki aðalatriði pistilsins. Þá er ennfremur vísað til þess að kærandi er ekki nefndur í þvi samhengi heldur Björgólfur Guðmundsson og Samson," segir í niðurstöðu siðanefndar.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 1. júní 2011, Innlent Leiðréttingin var birt
- Miðvikudagur, 1. júní 2011, Innlent Ekki brotlegir vegna Kastljósþátta
- Mánudagur, 5. september 2011, Innlent Björgólfur gagnrýnir umfjöllun
- Fimmtudagur, 6. janúar 2011, Innlent Umfjöllun á Facebook fréttaefni
- Fimmtudagur, 26. janúar 2012, Innlent Rangt að rannsóknarnefndin hafi svarað
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































