Fréttaskýring: Agasvipum flokksins beitt af hörku gegn órólegu deildinni

Frá þingflokksfundi VG í vikunni. stækka

Frá þingflokksfundi VG í vikunni. mbl.is/Ómar

Morgunblaðið Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is
Áfram heldur svikalognið í þingflokki Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, eftir mikinn átakafund sem stóð með hléi frá hádegi í fyrradag og fram á kvöld. Að vísu heitir það nú opinberlega að fundurinn hafi verið „góður. Hreinskiptnar og opinskáar umræður“ hafi farið þar fram.

Þetta þýðir á mannamáli að flokksforystan beitti flokkssvipunni óspart á fundinum og þeir sem haldið hafa uppi opinberri gagnrýni á störf og stefnu ríkisstjórnarinnar voru hundskammaðir, einkum og sér í lagi fyrir að bera raunir sínar á torg og gefa þannig fjölmiðlum tækifæri til þess að „blása upp ágreining innan flokksins og gera að sérstöku umfjöllunarefni“.

Formaðurinn og stjórn þingflokksins voru ómyrk í máli og kröfðust þess að þingmenn héldu sig við það að takast á málefnalega á eigin fundum og um efni þeirra funda ætti að ríkja trúnaður. Allt annað væri stórskaðlegt fyrir flokkinn.

Enginn friður í sjónmáli

Það ríkti alls enginn friður í VG fyrir þennan þingflokksfund og viðmælendur Morgunblaðsins úr röðum VG sögðu í gær, að það væru engar horfur á friði í flokknum á næstunni. Sá friður næðist einvörðungu með breytingum á áherslum í Evrópusambandsmálum, samstarfinu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, ríkisfjármálum og vinnubrögðum flokksforystunnar.

Stjórn þingflokksins, þau Árni Þór Sigurðsson, starfandi þingflokksformaður, Lilja Rafney Magnúsdóttir og Þuríður Backman lögðu fram tillögu að bókun á fundinum, sem ákveðið var eftir allnokkrar umræður að skoða betur og ræða nánar á næsta þingflokksfundi sem verður haldinn nú á mánudag, þann 10. janúar.

Árni Þór var í gær spurður hvers eðlis þessi tillaga að bókun hefði verið: „Við lögðum fram hugmynd að ákveðnu vinnulagi í mörgum liðum. Meðal annars að gerð yrði bókun um árangur af starfi ríkisstjórnarinnar til þessa, hver væru helstu verkefni næstu vikna og mánaða. Við gerðum tillögu um að settir yrðu á laggirnar ákveðnir starfshópar á vegum þingflokksins vegna þeirra mála sem verða fyrirferðarmikil á næstunni, svo sem ESB-málið, sjávarútvegsmálin og fleira. Þá lögðum við til að skipulögð yrði fundaherferð flokksins í samvinnu við stjórn flokksins og fleira í þessum dúr.“

Tillaga ekki dregin til baka

Árni Þór segir það ekki rétt að stjórn þingflokksins hafi dregið bókun sína til baka, vegna þess að þau Ásmundur Einar Daðason, Atli Gíslason og Lilja Mósesdóttir hafi lýst því yfir að þau gætu ekki stutt slíka bókun. Tillagan hafi alls ekki verið dregin til baka. Þingmenn hafi einfaldlega sagt, eftir að tillögunni hafi verið dreift á fundinum, að þeir þyrftu tíma til þess að skoða hana og gera sínar eigin athugasemdir, ekki síst hvað varðaði þann þátt er laut að ríkisfjármálum og endurmótun efnahagsstefnunnar. Við því hafi að sjálfsögðu verið orðið og málið verði áfram rætt á næsta þingflokksfundi á mánudaginn.

Fullyrt var af VG-félögum í gær, að þremenningarnir, þau Atli, Ásmundur Einar og Lilja hafi verið múlbundin á þessum þingflokksfundi og því hafi þau talað með þeim hætti sem þau gerðu eftir þingflokksfundinn í fyrrakvöld, þ.e.a.s. þau Ásmundur Einar og Lilja, en Atli hefur enn ekki sagt eitt orð eftir fundinn. „Það má kannski segja að tímabundið hafi þau þrjú verið barin til hlýðni með svipum flokksagans, en ég fæ ekki séð að sú hlýðni muni vara lengi, því ekkert breyttist á þessum fundi og þau lofuðu engu – hvorki því að skipta um skoðun, né því að láta af gagnrýni á það sem þau telja gagnrýnivert. Enda væru þau með slíku að bregðast bæði sjálfum sér og kjósendum VG,“ segir gamalreyndur VG-félagi.

Viðmælendur segja, að þótt staðan sé þessi nú, þá muni hún vart vara lengi, því sama undiralda og ólga óánægju kraumi áfram undir yfirborðinu og muni vafalítið brjótast upp á yfirborðið á ný, áður en varir.

Þessi þingflokksfundur hafi í raun ekki verið annað en veik tilraun flokksforystu og þingflokksforystu til þess að þjappa þingflokknum saman á málefnalegum grunni og sú tilraun hafi mistekist.

Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins mun stórum hluta fundartímans hafa verið varið í umræður og deilur um það aðlögunarferli að regluverki Evrópusambandsins, sem „órólega deildin“ og raunar mun fleiri telja að sé löngu hafið. Það sé einfaldlega ferli, sem aldrei hafi verið samþykkt af VG að yrði hafið og því sé augljóslega um skýlaus svik við stefnu flokksins að ræða.

Án heimildar frá þjóð og þingi

Raddir í þá veru að þeim farvegi sem Evrópusambandsmálin eru nú komin í verði að breyta, eru langt í frá þagnaðar. Umræðum um ESB verður fram haldið á þingflokksfundi á mánudaginn og menn voru í gær ekkert sérstaklega bjartsýnir á að á þeim fundi fengist einhver botn í umræðuna sem allir í þingflokknum gætu unað við.

Menn eru ekki á einu máli um það hvað beri að gera, en meðal þess sem rætt hefur verið um í þingflokki VG er möguleikinn á þjóðaratkvæðagreiðslu strax, draga umsóknina um aðild að Evrópusambandinu til baka og/eða láta reyna sérstaklega á okkar helstu og stærstu hagsmunamál strax, eins og sjávarútvegs- og landbúnaðarmál. Í þeim efnum sé brýnt að setja fram skilyrði Íslands gagnvart ESB, því skilyrði ESB liggi klár fyrir. Koma verði málinu upp úr því aðlögunarferli sem það er komið í og hefur verið í um skeið og tryggja meira gegnsæi í ferlinu en verið hefur. Hægt og bítandi sé verið að nudda Íslandi inn í Evrópusambandið, án þess að þjóð og þing hafi nokkurn tíma heimilað slíkt.

Flokkssvipur eru þekkt fyrirbæri í breskum stjórnmálum og er ætlað að hafa aga á eigin flokksmönnum. Formaður VG og stjórn þingflokksins brugðu sér í gervi flokkssvipna í fyrradag.„Illsmalanlegu kettirnir“ eða „órólega deildin í VG“ kann að spekjast um hríð, en næsta mánudag heldur stríðið áfram.

Er 40% andstaða lítið brot?

Þeir í VG sem reynt hafa að gera lítið úr málefnalegri andstöðu þingmanna flokksins við stefnu ríkisstjórnarinnar í Evrópusambandsmálum og ýmsum öðrum málum, vísa gjarnan til þess að hér sé einungis um lítið brot af þingflokknum að ræða, þrjá þingmenn af fimmtán.

Þetta er ekki nema hálfur sannleikur, því hið sanna er, að það eru a.m.k. sex þingmenn flokksins, eða 40% þingmannanna, sem eru þeirrar skoðunar að rangt sé að halda áfram því aðlögunarferli sem Ísland er nú komið í, í aðildarviðræðunum við ESB. Þetta eru þau sem Jóhanna Sigurðardóttir nefndi „illsmalanlega ketti“, Atli Gíslason, Ásmundur Einar Daðason og Lilja Mósesdóttir. En auk þeirra eru sömu skoðunar ráðherrarnir Jón Bjarnason og Ögmundur Jónasson og svo Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, formaður þingflokks VG, sem er í barneignarfríi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
GLUGGA,HURÐASMÍÐI OG MÓTAUPPSLÁTTUR.
Smíða glugga,hurðir og opnanlegaglugga í gömul og ný hús:Allt unnið úr fyrstaflo...
Standard Poodle hvolpar til sölu
Tilbúnir til afhendingar, ættbók frá HRFÍ, líf og sjúkdóma trygging frá VÍS. Fre...
Ný heilsársdekk Cooper M+s Sport fyrir 19" felgur
Er með fjögur heilsársdekk fyrir 19" felgur, Cooper M+s Sport Xl 255/50R19, ná...
SKRIFBORÐSSTÓLL GOTT VERÐ
er með nokkra góða stóla verð frá 5 þús sími 869-2798...
 
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...
Styrkir til eflingar starfsmenntunar
Tilkynningar
Styrkir til eflingar starfsmennt...
Markaðsmaður opnar sig !
Stjórnunarstörf
Markaðsmaður opnar sig Hef marg...
Administrative assistant
Sérfræðistörf
Icelandic Institute for Intelligent Mac...