Vill fund um ríkisborgararétt barns
Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur óskað eftir fundi í allsherjarnefnd. Segist hún gera það í kjölfar frétta Ríkissjónvarpsins í gær þar sem innanríkisráðherra hafi sett ofan í við allsherjarnefnd vegna veitingar ríkisborgararéttar barns sem statt er í Indlandi. Indversk staðgöngumóðir fæddi barnið fyrir íslenska foreldra.
Vigdís óskar eftir að fulltrúar innanríkisráðuneytisins sem hafa með ríkisborgaramál að gera og fulltrúar utanríkisráðuneytisins sem hafa með útgáfu vegabréfa að gera verði kallaðir fyrir nefndina.
Vigdís segir, að í aðdraganda þess máls fyrir þinglok í desember hafi fulltrúar dómsmálaráðuneytisins varað allsherjarnefnd við að leggja það til við Alþingi að veita barninu ríkisborgararétt á grundvelli samkomulags sem unnið er að í samvinnu við Evrópusambandsríkin um málefni sem snúi að staðgöngumæðrun á Indlandi. Hafi fulltrúar ráðuneytisins bent á, að með því að veita indversku barni, sem ætti indverska foreldra að lögum, íslenskan ríkisborgararétt myndi slíkt flækja málin enn frekar en orðið var.
Á endanum lögðu allir nefndarmenn, nema Vigdís, fram frumvarp um að 43 einstaklingum yrði veittur ríkisborgararéttur, þar á meðal litla drengnum. Vigdís tók síðan ekki þátt í atkvæðagreiðslu um málið á þingfundi.
Íslensku hjónin eru enn með drenginn á Indlandi þar sem ekki hefur verið gefið út vegabréf fyrir hann. Sjónvarpið sagði, að íslensk stjórnvöld geri kröfu um DNA-próf sem sýni að íslenski maðurinn sé faðir drengsins og einnig að indversk stjórnvöld staðfesti að íslensku hjónin fari með forræði drengsins. Takist þetta ekki gætu hjónin þurft að höfða véfengingarmál fyrir dómstólum á Indlandi.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 19. desember 2010, Innlent Sérstök sjónarmið og mynda ekki fordæmi
- Þriðjudagur, 1. febrúar 2011, Innlent Litli drengurinn farinn frá Indlandi
- Laugardagur, 18. desember 2010, Innlent Sonur staðgöngumóður fékk ríkisborgararétt
- Fimmtudagur, 27. janúar 2011, Innlent Málið snýst um forsjá barnsins
- Miðvikudagur, 12. október 2011, Innlent Ráðherra veiti ríkisborgararétt
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































