„Ég hef ekkert að fela“
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, óttast að stjórnvöld muni ekki virða þá friðhelgi sem hún nýtur sem þjóðkjörinn fulltrúi Íslendinga. Birgitta hyggst tala á ráðstefnu í Bandaríkjunum í sumar um upplýsingafrelsi. Hún kveðst ekki hafa neitt að fela.
Bandarísk stjórnvöld hafa krafist þess að örbloggsíðan Twitter afhendi öll skilboð Birgittu og þriggja annarra, þar á meðal Julian Assange.
„Ég er að ráðfæra mig við lögfræðinga í Bandaríkjunum um hvort það sé hægt að gera eitthvað til að hindra að þeir fái þessar upplýsingar. Næstu skref eru að ræða við utanríkis- og dómsmálaráðherra betur og ég vil tala við sendiherra Bandaríkjanna og spyrja hvort honum finnist þetta eðlilegt og kvarta yfir þessu. Koma þeim skilaboðum á diplómatískan hátt til Bandaríkjanna,“ segir Birgitta.
„Þetta er mjög alvarlegt, vegna þess að [forsvarsmenn] Twitter börðust mikið gegn þessu,“ segir Birgitta. Samskiptasíðunni barst beiðni bandarískra stjórnvalda þann fjórtánda desember sl. Birgittu var gert grein fyrir málinu laust fyrir átta í gærkvöldi með tölvupósti. Hún hefur fengið tíu daga frest frá vefsíðunni til að bregðast við gjörningnum. Hún segist ekkert hafa að fela, öll hennar skrif á Twitter séu opin almenningi.
Birgitta segir þetta vera „prinsipp“ mál. „Mér er boðið að tala á mikilvægri ráðstefnu í sumar í Bandaríkjunum um upplýsingafrelsi,“ segir þingmaðurinn og hlær við. „Þá er óþægilegt að vita ekki fyrirfram hvort þeir muni virða friðhelgi kjörinna fulltrúa. Ég hef ekki gert neitt ólöglegt, en ég veit ekki hvort það verði farið með mig í yfirheyrslu eða eitthvað slíkt.“
Tengsl Birgittu við Wikileaks eru helst þau, að hún var skráð sem meðframleiðandi myndbands sem vefurinn birti af skotárás bandarískra hermanna í Írak fyrir nokkru síðan. Myndbandið olli miklu fjaðrafoki á sínum tíma og var Birgitta talsmaður fyrir Wikileaks í tengslum við það mál.
„Þetta tengist því að [bandarísk stjórnvöld] vilja fá Julian [Assange] framseldan. Þeir eru að reyna tengja eitthvað glæpsamlegt milli aðila, býst ég við.“
Sex hundruð tölvupóstar á örfáum klukkustundum
Mál Birgittu hefur vakið mikla athygli hjá erlendum fjölmiðlum. Nú þegar hafa þó nokkrir skrifað um málið og þegar mbl.is hafði samband við Birgittu laust fyrir ellefu í morgun sagði hún að síminn hefði varla stoppað síðan hún vaknaði. Sex hundruð ólesnir tölvupóstar tengdir málinu biðu hennar í morgun, sem allir komu á örfáum klukkustundum.
Bloggað um fréttina
-
Valdimar Samúelsson Er ekki einmitt verið að berjast fyrir upplýsingafrelsi en kannski ... -
Björn Birgisson "Fangaskipti"? -
Jón Ármann Steinsson Hinn langi armur BNA -
Jón Baldur L'Orange Hvaða útrásarhugsanir er Birgitta að fela? -
Þorsteinn H. Gunnarsson Njósnað um Íslendinga -
Eyjólfur Sturlaugsson Netið verður seint ritskoðað -
Magnús Sigurðsson Má Birgitta passa sig? -
Heimir L Fjeldsted Er einhver glóra í þessu?
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 14. mars 2011, Innlent Notendur samskiptasíðna fá engu ráðið
- Laugardagur, 8. janúar 2011, Innlent Sendiherrann kallaður á fund
- Sunnudagur, 9. janúar 2011, Innlent Lögmaður Assange vill ná tali af Birgittu
- Sunnudagur, 20. mars 2011, Innlent Hafnaði boði um að segja af sér
- Þriðjudagur, 28. desember 2010, Innlent Segir ummæli þingmanns rakalausan þvætting
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































