Sendiherrann kallaður á fund
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir að bandaríski sendiherrann verði kallaður á fund í ráðuneytið vegna máls Birgittu Jónsdóttur alþingismanns. Hann sagði í samtali við fréttastofu Útvarps að íslensk stjórnvöld muni verja Birgittu eins og aðra íslenska þegna.
Bandarísk stjórnvöld hafa krafist þess að örbloggsíðan Twitter afhendi öll skilaboð Birgittu og þriggja annarra, þar á meðal Julian Assange, stofnanda Wikileaks. Birgitta vann um tíma sem sjálfboðaliði með Wikileaks.
Birgitta hyggst verjast þessari kröfu og hefur í dag rætt málið við Ögmund Jónasson innanríkisráðherra og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra.
Sérkennilegt mál
„Þetta mál virkar mjög sérkennilegt, satt að segja. Ég held að þeir sem gera þessar kröfur séu á hálum ís,“ segir Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis en þar er Birgitta fulltrúi. Þetta segir hann í samtali við mbl.is.
Árni Þór telur ekki óeðlilegt að utanríkisráðuneytið óski eftir skýringum frá bandarískum stjórnvöldum, í gegn um sendiráðið. Mikilvægt sé að fá það fram hvað þau séu raunveruleg að fara fram á.
Samskipti við bandarískt fyrirtæki
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi í utanríkismálanefnd, segir að það komi sér ekki á óvart að bandarísk stjórnvöld grípi til allra mögulegra úrræða sem þau hafi til að upplýsa málið, ef þau telji að starfsemi Wikileaks jafnist á við njósnastarf.
Spurður að því hvort íslensk stjórnvöld ættu að grípa til aðgerða vegna málsins, segist Bjarni ekki hafa heyrt frá Birgittu í fjölmiðlum eða annars staðar hvað hún fari fram á. „Mér sýnist þetta snúast um samskipti bandaríska yfirvalda við bandarískt fyrirtæki,“ segir hann.
Ekki hefur náðst í Össur Skarphéðinsson vegna þessa máls. Hann sagðist í í fréttum Útvarps ætla að bregðast hart við. Íslenskur þingmaður væri að ósekju orðinn viðfangsefni í sakamálarannsókn. Þá væri það ólíðandi að kjörinn fulltrúi þjóðar væri tekin þessum tökum.
Össur sagði að bandaríski sendiherrann yrði boðaður til fundar í ráðuneytinu vegna þessa máls.
Bloggað um fréttina
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson Nú fær utanrkisráðherra loks málið ! -
Jenný Stefanía Jensdóttir Með kjafti og klóm, eða útúrsnúningi. -
Axel Jóhann Hallgrímsson Er Íslendingar undirlægjur? -
Axel Jóhann Axelsson Össur upplýsi Fálkaorðumóðgunina í leiðinni -
-
Jón Ragnar Björnsson Bjarni bullar -
Jóhannes Ragnarsson Kærkomið tækifæri fyrir hrunsfígúru
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 8. janúar 2011, Innlent Össur: Birgitta varin með kjafti og klóm
- Laugardagur, 12. mars 2011, Innlent Ætla að áfrýja Twitter-dómi
- Mánudagur, 31. janúar 2011, Innlent Logi byltingar fer yfir
- Miðvikudagur, 9. febrúar 2011, Innlent Dómari fjallar um Twitter-mál Birgittu
- Mánudagur, 29. nóvember 2010, Innlent Veit ekki hvað er í Íslandsskjölum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































