HÍ þarf að hafa meira eftirlit með Raunvísindastofnun
Ríkisendurskoðun telur, að Háskóli Íslands þurfi að hafa virkari afskipti en hingað til af starfsemi Raunvísindastofnunar og betra eftirlit með henni. Meðal annars þurfi stjórnendur háskólans að taka meiri þátt í gerð rekstraráætlana stofnunarinnar og tryggja að eftir þeim sé farið en halli hefur verið á rekstrinum undanfarin ár.
Þá ber að mati Ríkisendurskoðunar að kanna hvort rétt sé að færa fjárveitingu til Raunvísindastofnunar undir HÍ en stofnunin er nú sjálfstæður liður í fjárlögum.
Raunvísindastofnun er hluti af Háskóla Íslands og skiptist í tvær undirstofnanir: Jarðvísindastofnun og Eðlis-, efna- og stærðfræðistofnun. Yfir Raunvísindastofnun er stjórn og undir hana heyra framkvæmdastjóri og skrifstofa. Jafnframt hefur hvor undirstofnun sína eigin stjórn. Samkvæmt lögum ber forseti verkfræði- og náttúrvísindasviðs HÍ ábyrgð á fjár- og starfsmannamálum Raunvísindastofnunar.
Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar um Raunvísindastofnun kemur m.a. fram, að samskipti mennta- og menningarmálaráðuneytisins við stofnunina beri vott um að það líti ýmist á stofnunina sem sjálfstæða ríkisstofnun eða hluta af HÍ. Ríkisendurskoðun segist telja, að ráðuneytið eigi að haga samskiptum sínum við stofnunina með þeim hætti að forræði háskólans yfir henni sé virt.
Ríkisendurskoðun telur að einfalda eigi skipulag Raunvísindastofnunar þannig að yfir henni verði aðeins ein stjórn. Þá telur Ríkisendurskoðun að setja þurfi skýrar verklagsreglur um ýmsa þætti í rekstri Raunvísindastofnunar og að hún þurfi að bæta umsýslu sína með styrkjum og rannsóknum.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 21. júní 2011, Innlent Öryggi sjúklinga ógnað
- Miðvikudagur, 11. maí 2011, Innlent Hert eftirlit hjá Umhverfisstofnun
- Föstudagur, 11. desember 2009, Innlent Nýta mætti framlög betur
- Föstudagur, 29. október 2010, Innlent Fjárhagslegur grundvöllur RES Orkuskóla veikur
- Mánudagur, 14. júní 2010, Innlent Uppgötvarnir í ljóstækni
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































