Færeyingar heimsækja Jón Bjarnason

Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Ómar Óskarsson

Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tók í morgun á móti Jacob Vestergaard sjávarútvegsráðherra Færeyja en ráðherrann er hér í þriggja daga heimsókn ásamt sendinefnd. Á fundi ráðherranna í dag verður rætt um tvíhliða samninga Færeyja og Íslands, um veiðar í lögsögum landanna, nýtingu sameiginlegra stofna og samstarf á alþjóðlegum vettvangi.

Reiknað er með að fundurinn standi fram eftir degi en eftir fund í ráðuneytinu heimsækja hinir erlendu gestir fyrirtæki á sviði sjávarútvegs og landbúnaðar.

Auk þeirra Jóns Bjarnasonar og Jacob Vestergaard sitja fundinn ráðuneytisstjórarnir Rógvi Reinert og Sigurgeir Þorgeirsson, Andras Kristiansen og Gunnar J. Djurhuus frá Færeyjum en af Íslands hálfu Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir, Jóhann Guðmundsson og Hrefna Karlsdóttir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert