Innlent
| mbl
| 11.1.2011
| 15:07
Lundey landaði loðnu
Áhöfn uppsjávarskipsins Lundey NS kom til hafnar á Vopnafirði á miðnætti með um 680 tonn af loðnu. Þetta kemur fram á vef HB Granda.
Loðnan er heldur smærri en sú sem barst til vinnslu fyrir áramót að sögn Magnúsar Róbertssonar, vinnslustjóra HB Granda. Magnús segir góðan hluta aflans henta til frystingar. Annað fari til bræðslu.
Vika er síðan Lundey NS hóf leit á loðnu í samræmi við áætlun Hafrannsóknarstofnunar. Leitin hófst á Vestfjarðamiðum. Arnþór Hjörleifsson, skipstjóri, segir að aðstæður hafi verið hinar verstu.
„Við byrjuðum í Víkurálsbotninum og fórum þaðan út í kantinn en urðum ekki varir við loðnu fyrr en við komum á Halann. Þar lóðaði á loðnu og samkvæmt upplýsingum frá skipstjórum togara, sem þar voru að veiðum, var fiskurinn kjaftfullur af loðnu. Við áttum að fara norðar til að kanna svæðið þar en urðum frá að hverfa vegna hafíss og svo var veðrið snælduvitlaust eins og það er reyndar búið að vera frá áramótum og er enn,“ segir Arnþór í viðtali við vefsíðuna. Frá Vestfjarðamiðum var ferðinni heitið austur á Kolbeinseyjarsvæðið. Þar tók ekki betra við.
„Við áttum að leita á svæðinu vestan við Kolbeinsey og fara síðan langt norður fyrir eyna en við gáfumst upp á því. Þarna var haugabræla, 20-25 m/s, og mikil ísing. Veður fór versnandi og því fórum við til hafnar á Húsavík þar sem við biðum bræluna af okkur.“
Lundey fór til loðnuveiða sl. sunnudagsmorgun og að sögn Arnþórs var stefnan þá tekin á svæðið norður af Langanesi.
„Við urðum varir við mikið líf á leiðinni og það vantaði a.m.k. ekki hvalina, þeir voru út um allt. Það brældi hressilega en við tókum tvö hol og í seinna skiptið toguðum við bara í um tvo tíma,“ segir Arnþór. Nokkur skip eru að veiðum á þessum slóðum um þessar mundir, á um 67°N. Einnig hefur orðið vart við loðnu sunnar og nær landi og benda fyrstu fréttir til þess að loðnan þar sé heldur stærri en sú sem skipin voru að fá norðar á veiðislóðinni.

© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 12. janúar 2011, Innlent Erfitt að meta ástandið á miðunum
- Þriðjudagur, 29. nóvember 2011, Innlent HB Grandi nær síldaraflamarki sínu
- Miðvikudagur, 25. janúar 2012, Innlent Rífandi gangur á Vopnafirði
- Fimmtudagur, 5. janúar 2012, Innlent Loðnu landað
- Þriðjudagur, 16. nóvember 2010, Innlent Bræla hefur hamlað veiðum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
Hænsnahús Til sölu
Til sölu heimili fyrir landnámshænur. Einangrað og klætt að innan. Varpkassar og...
Mitsubishi Galant (ES
Mitsubishi Galant (ES)
2001 árgerð
Ekinn ca 11000 mílur (176þús km)
Slagrými ...
NISSAN MICRA
Nissan Micra GX/LX. Nýskr. 1/1999, ekinn 115 þ.km, bensín, 5...
ORLOFSÍBÚÐIR
Orlofsíbúðir - Hótel Sandafell Njótið n...