Fundað í Stjórnarráðinu
Samninganefndir Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands funda í dag með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra í Stjórnarráðinu um stöðuna í kjaramálum.
Samninganefnd SA mætti á fund ráðherranna kl. 12:30 og er samninganefnd ASÍ væntanleg kl. 13:15.
Fram kemur í Morgunblaðinu í dag að lítið hafi þokast í viðræðum SA og ASÍ um kjarasamninga, en samninganefndirnar fóru yfir sameiginleg mál aðildarfélaga ASÍ á fundi hjá Ríkissáttasemjara í gær.
Samtök atvinnulífsins hafa lagt áherslu á að gerður verði samningur til þriggja ára, til þess að skapa stöðugleika í samfélaginu. Vilmundur Jósefsson, formaður SA, segir enn að því stefnt en tíminn verði að leiða í ljós hvernig mál þróist. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að sama meginviðhorf hafi verið uppi hjá ASÍ en óvissa í stjórnmálum og efnahagsmálum hafi fælt marga frá því. Flest landssambönd og aðildarfélög ASÍ vilji nú samning til skemmri tíma.
ASÍ vill að tiltekin mál sem snúa að ríkisvaldinu komist á hreint, til að samningar geti náðst. Gylfi nefnir jöfnun lífeyrisréttinda og atvinnumál. Einnig þurfi að fara yfir form samskiptanna.
Vilmundur
segir að forystumenn Samtaka atvinnulífsins muni gera formönnum
ríkisstjórnarflokkanna grein fyrir sýn sinni á stöðu mála og útskýra
ýmis mál sem þeir telja að koma þurfi fram, til þess að hægt verði að
ná samningum á eðlilegum nótum. Hann vill ekki greina frá einstökum
atriðum á þessari stundu.
Bloggað um fréttina
-
Gunnar Heiðarsson Umboðslaus samningamaður !! -
Heimir L Fjeldsted Egill er seinþreyttur til vandræða þegar samfylking á í hlut -
Guðrún María Óskarsdóttir. Sitjandi stjórnvöld landsins eiga ekki að bjóða upp á svona ...
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 14. apríl 2011, Innlent Enn allt á huldu í Karphúsinu
- Mánudagur, 21. febrúar 2011, Innlent Funda í Karphúsinu í dag
- Þriðjudagur, 26. apríl 2011, Innlent Funda um stöðu samningamála
- Þriðjudagur, 5. apríl 2011, Innlent Beðið svara ríkisstjórnar
- Fimmtudagur, 31. mars 2011, Innlent Ríkisstjórnin leggur spilin á borðið í dag
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































