Mikið tjón í Brisbane
Erla Margrét Gunnarsdóttir, námsmaður í Brisbane í Ástralíu, segir að mikið tjón hafi orðið í borginni vegna flóða, en flætt hefur inn í nokkur þúsund hús. Vatn er farið að renna inn á fyrstu hæð hússins þar sem Erla býr, en hún segist þó ekki vera í neinni hættu.
Vatn byrjaði að flæða inn á fyrstu hæð hússins í morgun, en Erla býr á þriðju hæðinni. Hún sagði vatnið hefði þó ekki náð eins hátt og hún reiknaði með. Mjög lítið hefur rignt í Brisbane í dag. Erla flutti stóran hluta af innbúi hússins á öruggan stað í morgun, en hún ætlar að dvelja í húsinu í nótt.
Borgaryfirvöld segja að flóðið nái hámarki kl. 4 í nótt. Þá er talið að vatnshæðin hafi hækkað um 5,5 metra upp fyrir eðlilegt vatnsyfirborð í ánni. Tólf hafa látist í flóðunum og 51 manns er saknað. Erla sagði að meðal þeirra sem hefðu látist væri fólk sem hefði fest bíla sína í flóðinu og ekki náð að komast í land.
Erla sagði að athafnalíf í borginni væri að stórum hluta lamað. Rafmagn hefði verið tekið af hluta borgarinnar vegna þess að spennistöðvar hafa farið á kaf .
„Við höfum séð ótrúlegustu hluti fljóta niður ána í dag. Við höfum séð kofa, húsbíla, heybagga, bryggjur, báta og fleira. Það eru sex brýr í miðborginni og við óttumst að skemmdir verði á þeim ef það hækkar enn meira í ánni. Það getur gerst ef hlutir sem áin tekur með sér rekast í brýnnar. Það er frægur veitingastaður í bát skammt frá okkur og eigendur hans ákváðu að sökkva honum frekar en að hann færi af stað niður ána.“
Erla sagði að vatnið væri afar óhreint og borgaryfirvöld hefðu varað fólk að vaða í vatninu. Hún sagðist ekki geta ímyndað sér hvernig borgin liti út þegar fljóðin taka að sjatna.





































