Pétur kemur heim á morgun
Pétur Kristján Guðmundsson, sem slasaðist alvarlega í slysi í Austurríki á gamlárskvöld, kemur heim til Íslands á morgun. Hann verður fluttur heim með flugvél Landhelgisgæslunnar.
Guðmundur Geir Sigurðsson, faðir Péturs, segist afar ánægður með að búið sé að tryggja heimferð sonar síns. Guðmundur fór til Austurríkis og heimsótti Pétur á sjúkrahúsið í vikunni. Hann var á leiðinni heim aftur þegar hann fékk fréttir af því að Landhelgisgæslan myndi ná í Pétur.
Pétur, sem er 24 ára gamall, slasaðist alvarlega þegar hann féll fram af hárri hengju við borgina Innsbruck í Austurríki um áramótin. Hann hlaut mænuskaða og er lamaður fyrir neðan mitti.
Guðmundur sagði að Pétur yrði fluttur á Landspítalann og færi fyrst í eingangrun, en það er ráðstöfun sem er alltaf gripið til til þess að koma í veg fyrir að smit berist með sjúklingum. Síðan færi hann í endurhæfingu á Grensásdeild.
Guðmundur sagði að Pétur hefði verið látinn standa á fætur í sérstöku stuðningstæki í dag. Heilsa hans væri því að batna. „Það er of mikið að segja að hann hafi mátt í fótunum, en hann hefur einhverja tilfinningu í þeim og það gefur manni von um að sú tilfinning geti orðið að mætti seinna. Þegar komið er við fæturna þá finnur hann fyrir snertingu. Mænan fór ekki alveg í sundur. Maður reiknar með að hann þurfi að nota hjólastól, en maður heldur í þá von að endurhæfing skili árangri,“ segir Guðmundur.
Flugvél Landhelgisgæslunnar lendir í fyrramálið. Með í för er læknir og sjúkraflutningamaður.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 15. janúar 2011, Innlent Lengsta sjúkraflug Gæslunnar
- Miðvikudagur, 5. janúar 2011, Innlent Slasaðist alvarlega í Austurríki
- Miðvikudagur, 19. janúar 2011, Innlent „Ég ætla mér að veðja á þetta núll komma eina prósent“
- Laugardagur, 8. janúar 2011, Innlent Líðan Péturs stöðug
- Mánudagur, 5. desember 2011, Innlent Stendur á ný með hjálp rafmagns
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































