Ekkert ferðaveður undir Eyjafjöllum

Sandrok er undir Eyjafjöllum og er ekkert ferðaveður að sögn Vegagerðarinnar. Á Suðausturlandi er hálka austan við Höfn en autt þar fyrir vestan, en óveður og hætta á sandroki á Mýrdalssandi. Þar er heldur ekkert ferðaveður. 

Ófært er í Víkurskarði, Grenivíkurvegi, Hófaskarði og Mývatnsöræfum á Norðurlandi eystra. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Öxnadalsheiði. Hálka og éljagangur er frá Akureyri út í Ólafsfjörð en þæfingsfærð inn í Eyjafirði. Þæfingsfærð er á flestum öðrum leiðum og er mokstur hafin.

Á Norðurlandi vestra er greiðfært í Húnavatnssýslu en hálkublettir á Þverárfjalli og Vatnsskarði. Ófært er á Siglufjarðarvegi. Hálka eða hálkublettir og skafrenningur er á flestum öðrum leiðum.

Á Vestfjörðum er snjóþekja og stórhríð á Gemlufallsheiði og í Önundarfirði, þar er ekkert ferðaveður. Þungfært er í Súgandafirði og beðið með mokstur. Þæfingsfærði er á Súðavíkurhlíð og mokstur hafin. Þungfært er í Ísafjarðardjúpi og þungfært og stórhríð er á Steingrímsfjarðarheiði og beðið með mokstur. Óveður er á Hálfdáni og Mikladal. Ófært á
Klettshálsi. Óveður er á Hjallahálsi. Hálkublettir og skafrenningur er á Þröskuldum.

Á Vesturlandi eru hálkublettir á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og fáeinum öðrum leiðum.

Á Austurlandi er ófært á Vopnafjarðarheiði og Fjarðarheiði. Þungært er á Möðrudalsöræfum. Hálka og skafrenningur er á Oddskarði. Hálka er frá Reyðarfiðri og með ströndinni.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert