Gæti hófs í kröfugerð

Frá fundi ráðherra og fulltrúa SA í gær.
Frá fundi ráðherra og fulltrúa SA í gær. mbl.is/Ernir

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segist hafa hvatt forsvarsmenn Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnilífsins til að gæta hófs í kröfugerð á hendur ríkinu svo aðhalds- og stöðugleikamarkmiðum ríkisstjórnarinnar verði ekki stefnt í hættu.

„Fátt er mikilvægara fyrir hag almennings og fyrirtækja en að áframhaldandi friður ríki á vinnumarkaði og að sátt náist sem fyrst um sanngja...rnar og raunhæfar kjarabætur. Ríkisstjórnin mun leggja sitt af mörkum til að svo geti orðið," segir Jóhanna á Facebook-síðu sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert