Vill stjórnsýsluúttekt vegna díoxíns
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, hefur farið þess á leit við Ríkisendurskoðun að fram fari stjórnsýsluúttekt á afskiptum umhverfisráðuneytisins, Umhverfisstofnunar, sveitarfélaga og annarra aðila af sorpbrennslustöðvum sem fengu starfsleyfi fyrir 28. desember 2002.
Segir á vef ráðuneytisins, að þetta sé gert í ljósi umræðu um díoxínmengun frá sorpbrennslustöðinni Funa á Ísafirði að undanförnu og mögulega tengingu hennar við mælingar á díoxínmengun í mjólkurafurðum frá býli í nágrenni stöðvarinnar.
Markmið stjórnsýsluúttektarinnar er að leiða í ljós hvernig staðið var að undirbúningi og framkvæmd málsins og hvort hagsmuna almennings og umhverfis hafi verið gætt í þessu ferli. Jafnframt að leggja fram tillögur um úrbætur í stjórnsýslunni og eftir atvikum á lagaumhverfi stjórnvalda ef ástæða er talin til.
Sorpbrennslu hefur nú þegar verið hætt í Funa og Umhverfisstofnun hefur lagt til að öðrum sorpbrennslum verði gert að uppfylla ströngustu mengunarvarnarkröfur innan tveggja ára. Umhverfisráðuneytið hefur þær tillögur nú til umfjöllunar.
Þá hefur komið fram opinberlega að sorpbrennslan í Vestmannaeyjum stefnir að því að auka flokkun á úrgangi sem dregur úr brennslu og mengun. Til slíkra aðgerða hefur þegar verið gripið á Kirkjubæjarklaustri. Þá hefur Umhverfisstofnun krafið sorpbrennslutöðina á Húsavík um tímasetta áætlun um úrbætur í mengunarmálum.
Matvælastofnun rannsakar nú díoxín í sauðfjárafurðum í nágrenni sorpbrennslustöðvarinnar og einnig hafa verið tekin ný sýni úr mjólk og fóðurrúllum frá Engidal í Skutulsfirði þar sem sem díoxín mældist yfir mörkum í mjólk fyrir áramót.
Mjólkursýni voru jafnframt tekin frá býlum í nágrenninu. Niðurstaðna úr sýnatöku er að vænta í fyrrihluta febrúar og mun stjórnskipuð samstarfsnefnd um sóttvarnir í kjölfarið fara yfir niðurstöður og taka í framhaldinu ákvörðun um frekari rannsóknir. Nefndina skipa sóttvarnarlæknir og fulltrúar frá Umhverfisstofnun, Matvælastofnun og Geislavörnum ríkisins.
Þá hefur umhverfisnefnd Alþingis falið Ólínu Þorvarðardóttur þingmanni að skoða lagaumgjörð sorpbrennslu hér á landi.
Bloggað um fréttina
-
Guðrún María Óskarsdóttir. Nærtækari verkefni liggja á borðinu fyrir Umhverfisráðuneytið.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 25. mars 2011, Innlent Ríkisendurskoðun fari yfir mengunarvarnir
- Fimmtudagur, 17. febrúar 2011, Innlent Til greina að skipa verkefnisstjórn um díoxínmengun
- Fimmtudagur, 23. desember 2010, Innlent Ísfirsk sorpbrennsla hugsanlega svipt starfsleyfi
- Miðvikudagur, 9. febrúar 2011, Innlent Skoði að hætta sorpbrennslu
- Miðvikudagur, 6. júlí 2011, Innlent Díoxín undir mörkum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































