Flughálka á Reykjanesbraut

Frá Reykjanesbraut
Frá Reykjanesbraut mbl.is/RAX

Vegagerðin varar við flughálku á Reykjanesbraut. Unnið er við söltun. Á Suðurlandi eru hálkublettir frá Selfossi og austur að Markarfljóti. Á  Vesturlandi er víða nokkur hálka en snjóþekja eða krap á fáeinum vegum.

Það er snjóþekja, krap eða hálka á flestum vegum á Vestfjörðum. Þæfingsfærð er þó á Þröskuldum og Steingrímsfjarðarheiði, og skafrenningur. Á Norðurlandi er hálka á flestum leiðum en þæfingsfærð er fyrir Vatnsnes. Éljagangur er í Ljósavatsskarði og á
Hófaskarðsleið.

Hálka er á flestum vegum á Austurlandi en þæfingur er á Vopnafjarðarheiði og Vatnsskarð eystra ófært. Vegir á Suðausturlandi eru hins vegar auðir.

Ábendingar veðurfræðings
Mjög víða á láglendi hafa vegir náð að blotna  og vindur á landinu verður hægur áfram.  Staðbundið mun létta til og þá frystir við veg með kvöldinu og varasöm ísing getur myndast.  Einkum á þetta við á vegum norðanlands og sums staðar á Vesturlandi, en  einnig á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og fyrir austan fjall.

Fylgist með þjónustu
Nauðsynlegt er að vegfarendur hafi í huga að víða er ekki mokstur, eða önnur þjónusta á vegum, á kvöldin og nóttunni. Raunar eru sumir vegir ekki í þjónustu nema fáa daga í viku. Upplýsingar um þjónustutíma eru á vef Vegagerðarinnar og í síma 1777.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert