Erfið björgun á Heiðarhorni

Heiðarhorn sést fyrir miðri mynd, undir skýinu. Næst sést Skessuhorn. Myndin var tekin kl. 16.00 ... stækka

Heiðarhorn sést fyrir miðri mynd, undir skýinu. Næst sést Skessuhorn. Myndin var tekin kl. 16.00 í gær. Sem sjá má er snjór og hálka á fjallinu. Ljósmynd/Arngrímur Hermannsson

Að minnsta kosti 80 björgunarsveitarmenn taka þátt í björgun fótbrotins fjallgöngumanns af Heiðarhorni á Skarðsheiði. Björgunarsveitir frá Akranesi, Borgarnesi og höfuðborgarsvæðinu taka þátt í aðgerðinni, sem stýrt er frá miðstöð Björgunarfélags Akraness.

„Þetta er erfið aðgerð, mjög erfið,“ sagði Lárus Guðlaugsson, stjórnandi aðgerðarinnar. „Þetta er burður alla leið og brostið á myrkur. Svo er svartaþoka og ekki flugfært.“

Lárus sagði að mikil hálka sé á fjallinu, sem er 1.060 m hátt og mjög bratt á köflum. Útkallið kom um klukkan 15.30. Þeir sem óskuðu eftir aðstoð gátu látið vita um nákvæma staðsetningu þess fótbrotna. Það mun vera nær efst í Heiðarhorninu.

Fyrstu björgunarmennirnir voru að nálgast það að vera hálfnaðir upp á Heiðarhorni laust fyrir klukkan fimm í dag. Þeir höfðu reiknað með að vera um það bil tvær klukkustundir upp á hornið. Ganga þarf hluta leiðarinnar á mannbroddum sem tefur fyrir. 

Lárus sagði að reikna megi með því að ferðin niður með hinn slasaða geti orðið tvöfalt eða þrefalt lengri. Það gæti því dregist fram undir miðnætti að aðgerðinni ljúki. 

„Reglan í þessu er að flýta sér hægt,“ sagði Lárus. „Það þarf að koma öllum heilum upp og aftur til baka.“

Uppfært kl. 17.54 

Samkvæmt upplýsingum mbl.is var sá sem fótbrotnaði að ganga á fjallið ásamt hópi og í honum er m.a. læknir. 

Um klukkan 17.40 var um 350 metra hæðarmunur á milli fyrstu björgunarmanna og þess fótbrotna og þeirra sem með honum eru. Vegalengdin á milli hópanna er þó talsvert meiri. 

Á Heiðarhorni í blíðskaparveðri. Nú er þar svartaþoka og myrkur auk þess sem ísing og ...

Á Heiðarhorni í blíðskaparveðri. Nú er þar svartaþoka og myrkur auk þess sem ísing og hálka er þar uppi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kolbrún Baldursdóttir.

Kolbrún formaður Barnaheilla

17:07 Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur var kosinn formaður stjórnar Barnaheilla – Save the Children á Íslandi á aðalfundi samtakanna í vikunni. Tap varð af rekstri samtakanna á árinu 2011. Meira »

Nammigrísir gripnir glóðvolgir

16:50 Tveir nammigrísir voru handteknir í miðborginni í gær en þeir stálu sælgæti úr verslun. Þegar þeir ætluðu að laumast út úr versluninni með nammið innan klæða mættu þeir lögreglu sem sá að þeir höfðu eitthvað að fela. Meira »

EA fjárfestingarfélag þarf ekki að greiða sekt

Hæstiréttur
16:46 Hæstiréttur staðfesti í dag ákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur að fella úr gildi ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um álagningar 15 milljón króna stjórnvaldssektar á EA fjárfestingafélag. Meira »

Þjóðin taki af skarið

Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar.
16:24 Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, gagnrýndi stjórnarandstöðuna á Alþingi í dag fyrir að beita málþófi til að tefja mál. Hann segir að þingið eigi að velta því fyrir sér hvort ekki sé nauðsynlegt að láta þjóðina einfaldlega taka af skarið varðandi stór deilumál. Meira »

Hráefni gætu hækkað við inngöngu í ESB

16:21 Innganga Íslands í Evrópusambandsins gæti þýtt að íslenskir framleiðendur hefðu ekki sama aðgang að hráefnum og áður. Þetta gæti hækkað kostnað fyrirtækjanna ef ekki tekst að ná hagstæðum samningum við sambandið. Meira »

Nauðgunardómur staðfestur

16:36 Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir karlmanni sem var dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir nauðgun að öðru leyti en því að til frádráttar refsingu kemur gæsluvarðhald hans frá 3. til 7. maí 2011. Meira »

Tólf stigin duga ekki Íslandi til sigurs

Cecilia Malmström framkvæmdastjóri innri málefna í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins á fundinum í gær.
16:23 Í aðdraganda Alþjóðlegs dags gegn hómófóbíu og transfóbíu á morgun gáfu ILGA-Europe í gær út sitt fyrsta „Ársyfirlit yfir stöðu mannréttinda hinsegin fólks í Evrópu“. Ritinu fylgdi ný útgáfa af svokölluðu „Regnbogakorti“ sem sýnir stöðu mála myndrænt eftir ríkjum. Meira »

Stýrivaxtahækkun „algjört kjaftshögg“

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vill að þingið einbeiti sér að því að ræða leiðir ...
16:04 „Það bárust okkur skelfilegar fréttir í morgun, því það er algjört kjaftshögg fyrir fólk og fyrirtæki í þessu landi að það sé verið að hækka hér vexti. Það er algjört kjaftshögg,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í umræðum um störf þingsins í dag. Meira »

Minni losun gróðurhúsalofttegunda frá áliðnaði

ÍSAL Straumsvík
16:00 Losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi minnkaði á síðasta ári um 6% á hvert framleitt tonn. Losun hefur minnkað um 75% á hvert framleitt tonn frá árinu 1990. Meira »

Ræddu umsóknir um áheyrnaraðild

15:54 Á aðstoðarutanríkisráðherrafundi Norðurskautsráðsins, sem haldinn var í Stokkhólmi í gær, var fjallað um fyrirliggjandi umsóknir um áheyrnaraðild að ráðinu. Evrópusambandið, Ítalía, Japan, Kína, Singapúr og Suður-Kórea hafa sótt um áheyrnaraðild ásamt fjórum alþjóðasamtökum. Meira »

Myndbandsupptaka dugði ekki til

Héraðsdómur Reykjavíkur.
15:58 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað konu af ákæru um þjófnað á tveimur töskum úr fataverslun í miðborg Reykjavíkur. Þjófnaðurinn náðist á upptöku úr öryggismyndavél en upptakan dugði ekki til sakfellingar. Meira »

Vilji ekkert leggja á sig

Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG.
15:54 Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG, segir að í viðræðum stjórnvalda við lífeyrissjóðina þá birtist stjórnir sjóðanna eins og þær vilji ekkert leggja á sig við uppbyggingu samfélagsins. Þær telji það jafnvel andstætt hagsmunum sjóðanna. Meira »

Stuðningur við Íslendinga í fangelsum erlendis

Aðbúnaður í fangelsum erlendis getur verið slæmur. Mynd úr safni.
15:51 Ríkisstjórn Íslands ákvað á fundi sínum síðastliðinn föstudag að fela utanríkisráðherra og innanríkisráðherra að undirbúa gerð samninga við önnur ríki um flutning dæmdra manna og fullnustu refsinga. Meira »

Listaverk í snjónum á Seyðisfirði

Listamaðurinn við gerð snjókarlsins í gær.
15:45 Þó að dagatalið segi að það eigi að vera komið sumar á það nú ekki við um allt land. Á Seyðisfirði féll snjór í gær og þá var auðvitað tilvalið að búa til listaverk í snjónum. Snjókarlinn við höfnina segir meira en mörg orð um veðurfarið nú í maí. Meira »

Margir óku of hratt í Kópavogi

Lögreglan við umferðareftirlit.
15:34 Brot 89 ökumanna voru mynduð á Digranesvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Digranesveg í austurátt, gegnt MK. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 167 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 53%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meira »

Verk Leifs vígt fljótlega

Listaverk Leifs Breiðfjörðs
15:48 Listaverk glerlistamannsins Leifs Breiðfjörð í Southwark dómkirkjunni í Lundúnum verður vígt þann 3. júní í tilefni af sextíu ára valdaafmæli Elísabetar II. Englandsdrottningar. Meira »

Nýir skólastjórar við þrjá grunnskóla

Nýr skólastjóri hefur verið ráðinn í Ölduselsskóla.
15:36 Gengið var frá ráðningum skólastjóra við þrjá grunnskóla í Reykjavík á fundi skóla- og frístundaráðs í dag. Jónína Ágústsdóttir var ráðin skólastjóri í Breiðholtsskóla, Ásta Bjarney Elíasdóttir verður skólastjóri í Húsaskóla og Börkur Vígþórsson tekur við skólastjórn í Ölduselsskóla. Meira »

Gróðurhús í útrás til Kína myndskeið

160512 lambhagi
15:04 Mikill áhugi er fyrir því að byggja gróðurhús að íslenskri fyrirmynd í S-Kína en Hafberg Þórisson, garðyrkjumaður og eigandi Lambhaga, tók í dag á móti aðstoðarlandbúnaðarráðherra Kína sem kynnti sér starfsemina í gróðurhúsinu. En að sögn Hafbergs eru gróðurhúsin hér einfaldari en í Evrópu t.a.m. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
JARÐABERJAPLÖNTUR & FALLEG FJÖLÆRBLÓM
Eins og undanfarin 3 sumur verðum við með jarðaberjaplötur til sölu. Það Norsk ...
Standard Poodle hvolpar til sölu
Standard Poodle hvolpar til sölu tilbúnir til afhendingar. Ættbók frá HRFÍ, líf ...
Glæsilegur sportfatnaður- Skipti á bíl
Nýtt vörupartí í glæsilegum sportfatnaði, um 2800 flíkur, í skiptum fyrir bíl eð...
Fótboltaspil
Til sölu er þetta glæsilega fótboltaspil, er eins og nýtt. Verð kr. 10.000 að lá...
 
I.o.o.f. 11 [ 192538 [ kkv.
Félagsstarf
I.O.O.F. 11 [ 19351019:30 [ Lf....
Fundur
Fundir - mannfagnaðir
Vorfundur Mímis-símenntunar Framhal...
Verkefnastjóri/ sérfræðingur
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Samkoma kristniboðssambandið
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma ...