Krefjast leiðréttinga og hvetja til mótmæla

Hagsmunasamtök heimilanna.
Hagsmunasamtök heimilanna. heimilin.is

Hagsmunasamtök heimilanna krefjast þess að fjárskuldbindingar almennings verði leiðréttar með tilliti til afleiðinga bankahrunsins fyrir rúmum tveimur árum. Þá er fólk hvatt til að mótmæla ástandinu í landinu og stjórnarfari þess. Ályktum þessa efnis var samþykkt á almennum félagsfundi samtakanna í gær.

Ályktunin í heild sinni hljóðar svo:

„Fundurinn krefst þess að fjárskuldbindingar almennings verði leiðréttar fyrir afleiðingum banka og gjaldeyrishruns 2008.

Staða lántaka verði þannig jöfnuð gagnvart innstæðueigendum sem fengu hlut sinn fyrirhafnarlaust bættan með ákvörðun stjórnvalda.

Nauðungarsölur og afborganir lána verði tafarlaust stöðvaðar og ekki heimilaðar að nýju fyrir en hlutur lántaka hefur verið réttur.

Þá hvetur fundurinn alla til að mæta á Austurvöll eða á torgum byggðarlaga sinna mánudaginn 17. janúar 2011 kl. 16:30 til að tjá hug sinn gagnvart stjórnarfarinu og ástandinu í landinu.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert