„Alls staðar fólk í gúmmístígvélum með skóflur og kústa“
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„Vatnið er að sjatna og Brisbane er að þorna,“ segir Erla Sigurlaug Sigurðardóttir sem flutt er með eiginmanni sínum Víglundi Helgasyni og tveimur börnum til Brisbane í Ástralíu en þau komu til borgarinnar í fyrradag. Gríðarleg flóð urðu í borginni í liðinni viku og þurftu þúsundir að flýja heimili sín. Eyðileggingin sem blasir við er rosaleg, að sögn Erlu.
„Hreinsanir eru hafnar á fullu, það eru bílar hérna að taka sandpokana og alls staðar fólk í gúmmístígvélum með skóflur og kústa, drullugt upp fyrir haus, að moka, hreinsa og þrífa,“ segir Erla.
„Við fórum í miðbæinn í gær. Það hefur lækkað í ánni og ekkert flóð þar lengur en allt við ána, þar sem eru ofsalega fallegir göngustígar og slíkt, er bara girt af. Ferjan náttúrlega gengur ekki, áin er sjúklega straumhörð og það siglir enginn á henni nema lögreglan enda allar ferjustöðvarnar brotnar, engar ferjur sem ganga. Ferjurnar eru mikilvæg samgöngutæki hérna.“
Erla segir fjölskylduna ekki hafa verið komna með húsnæði í borginni áður en hún lagði af stað en hafi verið að skoða íbúð á háskólasvæðinu og þar sé allt á floti. Erla hlaut alþjóðlegan Rotary-námstyrk til að fara í meistaranám í friðar- og átakafræðum í Brisbane og býr nú ásamt fjölskyldu sinni hjá Rotary-fólki, í húsi sem slapp við flóðið þar sem það stendur frekar hátt í borginni. „Við bíðum bara róleg hérna, við ætlum að búa í háskólahverfinu, þegar það lagast. Við gistum bara hjá Rotary-fólkinu þangað til. Við ætluðum að reyna að flytja í þessari viku en það mun eitthvað dragast. Við ætlum að fara á stúfana í dag, fara að skoða hvernig ástandið er,“ segir Erla og er bjartsýn þrátt fyrir ástandið.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 11. janúar 2011, Innlent Reiknar með að 1. hæðin fari á kaf
- Miðvikudagur, 12. janúar 2011, Innlent Mikið tjón í Brisbane
- Fimmtudagur, 13. janúar 2011, Innlent Vatnsyfirborðið lækkar hratt
- Sunnudagur, 21. mars 2010, Innlent Hugsanlega flutt burtu í þyrlu
- Þriðjudagur, 15. desember 2009, Innlent Öryggi barna í leikskólum ekki í hættu
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































