Eyraroddi á Flateyri gjaldþrota
Héraðsdómur Vestfjarða hefur úrskurðað Eyrarodda hf. á Flateyri gjaldþrota eftir að stjórn fyrirtækisins og umsjónarmaður nauðasamninga félagsins lögð fram beiðni þess efnis fyrir dómara í dag.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn Eyrarodda.
Þar segir að undanfarið hafi stjórn Eyrarodda unnið að fjárhagslegri endurskipulagninu félagsins í samvinnu við kröfuhafa þess.
Niðurstaða þeirra viðræðna var sú að nauðasamningur
fyrir félagið var samþykktur en ekki tókst að útvega nægt fjármagn til
að halda áfram rekstri og mæta áföllnum skuldbindingum. Því var
óumflýjanlegt að óska eftir skiptum.
„Í upphafi lá fyrir að rekstur fiskvinnslu án kvóta yrði mjög erfiður. Þrátt fyrir það reyndu forsvarsmenn félagsins að koma af stað rekstri á Flateyri en því miður tókst ekki að afla nægs hráefnis til þess að fiskvinnslan stæði undir sér. Sá byggðakvóti sem hafði verið ætlaður Flateyri á árunum 2007 til 2010 var lítill. Jafnframt fór svo að mikill dráttur varð á úthlutun hans, til dæmis drógst um nærri tvö ár að úthluta byggðakvóta Flateyrar vegna fiskveiðiársins 2008/2009.
Eftir
að tilkynnt var um 300 tonna byggðakvóta til Flateyrar í nóvember
síðast liðnum, reyndu forsvarsmenn félagsins, samhliða fjárhagslegri
endurskipulagningu, að skjóta styrkari stoðum undir rekstur félagsins
með því að tengja saman útgerð með kvóta og fiskvinnsluna á Flateyri.
Það tókst því miður ekki. Einnig lá fyrir að 300 tonna byggðakvótanum
yrði ekki úthlutað fyrir en í lok febrúar og ekki var handbært
nægjanlegt fjármagn til að halda áfram rekstri fram að þeirri úthlutun,
þrátt fyrir að nauðasamningur hefði gengið eftir á grundvelli þeirra
rekstrarforsenda sem kynntar höfðu verið.
Til
viðbótar þeim sérstaka vanda sem að fyrirtækinu á Flateyri steðjaði,
bættist við að erfitt var að efna til samstarfs við önnur fyrirtæki í
sjávarútvegi vegna þeirrar óvissu sem uppi er um rekstrarumhverfi
greinarinnar.
Það eru stjórn Eyrarodda mikil vonbrigði að ekki hafi tekist að tryggja áframhaldandi rekstur á Flateyri,“ segir í tilkynningunni.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 27. júní 2011, Innlent 154 kröfur í þrotabú
- Föstudagur, 12. ágúst 2011, Innlent Samið um skiptingu Eyrarodda
- Fimmtudagur, 30. júní 2011, Innlent Ósamið um sölu eigna
- Sunnudagur, 13. febrúar 2011, Innlent Nýir eigendur Eyrarodda
- Miðvikudagur, 19. janúar 2011, Innlent Vandamál Flateyrar kvótanum að kenna
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































