Fagna stuðningi stjórnvalda

Björk Guðmundsdóttir, Oddný Eir Ævarsdóttir og Jón Þórisson á tröppum …
Björk Guðmundsdóttir, Oddný Eir Ævarsdóttir og Jón Þórisson á tröppum Stjórnarráðsins í morgun. mbl.is/Ómar

Aðstandendur undirskriftasöfnunarinnar orkuaudlindir.is segja stuðning forsætis- og fjármálaráðherra við áskorunina vera fagnaðarefni, en þar er skorað á stjórnvöld að koma í veg fyrir söluna á orkufyrirtækinu HS Orku til sænska fyrirtækisins Magma Energy.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra funduðu með Björk Guðmundsdóttur, Jóni Þórissyni og Oddnýju Eir Ævarsdóttur í Stjórnarráðinu í dag, en þau síðastnefndu afhentu stjórnvöldum tæplega 50.000 undirskriftir.

Fram kemur í tilkynningu að fundurinn hafi verið málefnalegur og stuðningur forsætis- og fjármálaráðherra við áskorunina sé fagnaðarefni.

„Fram kom að stjórnvöld íhuga ýmsar leiðir til úrlausnar á málinu. Undirrituð hvöttu til þess að almenningi væri haldið upplýstum um framgöngu málsins.

Við teljum okkur ekki hafa umboð til að semja um málavöxtu við stjórnvöld en munum gera okkar ítrasta til að stuðla að því áfram að rödd þjóðarinnar fái hljómgrunn. Við lögðum áherslu á það sjónarmið nær fimmtíu þúsund Íslendinga að nauðsynlegt sé að stöðva einkavæðingarferlið þegar í stað.

Það er stjórnvalda að ákveða hvaða leiðir eru farnar. Á fundinum kom fram vilji og ásetningur stjórnvalda til þess að vinda ofan af sölunni á HS Orku í samræmi við fyrri yfirlýsingar. Einnig var ítrekaður skýr vilji stjórnvalda til að rannsaka einkavæðingarferlið og tryggja almannaeign orkufyrirtækja landsins. Samhliða verði unnið að því að auðlindir landsins og nýtingarréttur þeirra verði aftur í þjóðareign. Þá var rætt um nauðsyn þess að í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu fari fram opin umræða um framtíðarorkustefnu þjóðarinnar.

Þolinmæði stórs hluta þjóðarinnar er brátt á þrotum. En við fögnum málefnalegri samræðu og vilja til að vinna markvisst að því að finna lausn hið bráðasta,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert