Margir duttu í hálku í dag

Víða er flughált í dag.
Víða er flughált í dag. mbl.is/Jim Smart

Annríki hefur verið á slysadeild Landspítalans í Fossvogi í dag vegna hálkuslysa, en víða á höfuðborgarsvæðinu er flughált.

Að sögn vaktstjóra á deildinni hefur verið fullt þar í allan dag, en vegna anna hafði ekki gefist tími til að taka saman fjöldann.

Biðstofan var full í allan dag og enn biðu margir á tíunda tímanum í kvöld.

Meiðsli fólks, sem dettur í hálku, geta verið af margvíslegum toga, en brot á úlnlið eru einna algengust vegna þess að fólk ber höndina gjarnan fyrir sig er það dettur og getur þá lent illa á úlnliðnum.

Að sögn vaktstjórans leitar fólk á öllum aldri á deildina vegna hálkuslysa.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert