Íslensku nöfnin erfið

Manhattan í New York. stækka

Manhattan í New York. Reuters

Endurrit af dómþingi í New York, þegar dómari ákvað að vísa frá máli slitastjórnar Glitnis gegn sjö einstaklingum og PricewaterhouseCoopers, hefur nú verið birt á vef dómsins. Þar kemur fram, að dómarinn og lögmenn áttu í erfiðleikum með að henda reiður á íslenskum nöfnum fyrirtækja og einstaklinga.

Þegar Michael C. Miller, lögmaður slitastjórnarinnar, rakti málavöxtu fyrir Charles E. Ramos, dómara,  þurfti dómarinn fljótlega að stöðva lögmanninn því hann átti í erfiðleikum með að greina á milli nafnanna (Jóns Ásgeirs) Jóhannessonar og (Þorsteins) Jónssonar.

„Það er ekki erfitt að rugla þessum nöfnum saman," sagði þá Stephen P. Younger, einn af lögmönnum sjömenninganna.

Þegar Younger síðan reifaði málið frá sjónarhóli sjömenninganna og þurfti að bera fram nöfn á borð við Tryggingamiðstöðina,  Kjarrhólma og Oddaflug varð honum að orði: „Þér myndi þykja gaman að dæma í þessu máli. Það tæki marga klukkutíma að bera fram nöfnin." Hann sagðist þó auðveldlega geta borið fram nafnið 101 Capital. 

Dómarinn lýsti fljótlega miklum efasemdum um að málið ætti heima fyrir rétti í New York. „Ég horfi á deilu milli tveggja íslenskra aðila sem flutt er í New Yor og ég spyr mig, ég er aðeins mannlegur, hvers vegna í ósköpunum eru þeir að ónáða mig með þessu máli? Hvaða máli skiptir það dómstóla og skattgreiðendur í New York, sem borga mér lúsarlaun, að ég eyði miklum tíma í þetta mál þegar ég á enn erfitt með að skilja hvers vegna niðurstaða þess skipti okkur nokkru máli?" segir dómarinn á einum stað. „Ég hef tilhneigingu til að senda ykkur til Íslands."

Dómarinn sagðist bera mikla virðingu fyrir öðrum þjóðum. „Ísland var land löngu á undan okkur. Nokkrir af þeim fyrstu mönnum, sem komu hingað, voru sennilega frá Íslandi. En ég tel að þetta mál sé ónauðsynleg byrði fyrir New York ríki," sagði Ramos.

Ein af málsástæðum slitastjórnarinnar fyrir að sækja málið í New York var að íslenskir dómstólar væru yfirfullir af málum í kjölfar bankahrunsins. Þessu gerðu lögmenn sjömenninganna lítið úr og sögðu að á fyrri hluta síðasta árs hefðu dómarar á Íslandi að meðaltali fengið innan við 13 ný mál hver. Ramos dómari sagðist hins vegar hafa 350 mál á sinni könnu.

Niðurstaða dómarans var að vísa málinu frá, svo framarlega sem sjömenningarnir og PricewaterhouseCoopers lýstu því yfir fyrir dómi að þau muni ekki mótmæla lögsögu íslensks dómstóls í málinu. Í öðru lagi þyrftu þau að lýsa því yfir að þau myndu ekki mótmæla því að dómur, sem félli á Íslandi, væri aðfararhæfur í New York. Fram kemur í málsskjölum, að ágreiningur er á milli slitastjórnarinnar og sjömenninganna um orðalag slíkrar yfirlýsingar og hefur ekki fengist niðurstaða um það enn. 

Endurrit dómþingsins

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Toyota Corolla1,4 VVTi,8/2003
Til sölu Toyota Corolla 1,4 VVTi, 8/2003. Ek. 100 þús., bensín, nýskoðaður, ný ...
Nánast nýr Toyota Auris til sölu.
Til sölu Toyota Auris Terra, ekinn aðeins 2 þús.km. og því nánast sem nýr. Nýskr...
HONDA CR-V STW
Honda CR-V STW 4WD RVI , 1998, ekinn 223 þús. Ssk, dráttarkr...
SÖLUSKOÐUN
Söluskoðanir bifreiða. Ertu að kaupa bíl? Láttu fagmenn greina ástand hans áður ...
 
Markaðsmaður opnar sig !
Stjórnunarstörf
Markaðsmaður opnar sig Hef marg...
Opinn fundur
Félagsstarf
Félag sjálfstæð...
Útboð nr. 20091
Tilboð - útboð
Útboð nr. 20091 Glerskipti...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...