Orkuskólinn gjaldþrota

Frá útskrift úr RES Orkuskólanum á Akureyri
Frá útskrift úr RES Orkuskólanum á Akureyri www.res.is / Rúnar Þór Björnsson

RES Orkuskólinn á Akureyri hefur verið úrskurðaður gjaldþrota. Nemendur skólans, sem eru rúmlega fjörutíu munu útskrifast á vegum Háskólans á Akureyri og Háskóla Íslands, sem bera faglega ábyrgð á náminu.

RES er alþjóðlegur háskóli á sviði endurnýjanlegra orkugjafa, hann var stofnaður árið 2006 á Akureyri og á vefsíðu skólans segir að starfsemi skólans byggi á forystu Íslendinga á sviði orkumála og víðtæku samstarfsneti bæði innlendra- og erlendra rannsóknar- og háskólastofnanna.

Félagið Orkuvörður ehf.  stendur að baki skólanum. Reksturinn hefur gengið illa undanfarin ár og aðgerðir verið reyndar til að bjarga rekstrinum.

Nemendur skólans eru flestir erlendir.

Í kvöldfréttum RÚV kom fram að ekki væri vitað hvað gjaldþrotið væri stórt. 



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert