Fyrstu kajakarnir frá Íslandi

Efri báturinn heitir Tuukkaq (skutulsoddurinn) en hinn heitir Sakkeq (konu-hnífurinn). …
Efri báturinn heitir Tuukkaq (skutulsoddurinn) en hinn heitir Sakkeq (konu-hnífurinn). Þetta eru nýjustu bátarnir en boðið er upp á þrjár tegundir. mbl.is

Fyrstu kajakgrindurnar sem smíðaðar eru á Hnífsdal verða sendar til útlanda í lok janúar eða byrjun febrúar. Þetta er í fyrsta skipti sem kajakar eru smíðaðir á Íslandi, sérstaklega til útflutnings. Tveir menn vinna við smíðina og ef salan verður eins góð og vonir standa til fjölgar þeim í fjóra.

Framleiðslan er á vegum fyrirtækisins Greenland Kaykaks sem er að hluta til í eigu Byggðastofnunar Grænlands. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins er Baldvin Kristjánsson sem hefur verið kajakleiðsögumaður og -kennari til margra ára.

Alþjóðlegt verkefni

Hönnun bátanna byggir á hefðbundnum grænlensku kajökunum en segja má að um alþjóðlegt verkefni sé að ræða. Stærstur hluti framleiðslunnar fer fram hér á landi en einnig er eða hefur verið unnið að gerð bátanna í Bandaríkjunum, Kanada, Austurríki, Noregi, Svíþjóð, Hollandi, Austurríki og Englandi, að sögn Baldvins

 Grindin er úr nokkrum mismunandi trjátegundum en dúkurinn er úr níðsterku gerviefni. Í Hnífsdal er nú búið að setja saman 15 grindur í kajaka en dúkurinn verður settur á í Svíþjóð og þar fer lokafrágangur fram.

Ekki hægt að flytja fullsmíðaða báta til ESB eða Bandaríkjanna

Baldvin segir að ekki sé leyfilegt að flytja kajakana fullsmíðaða til landa Evrópusambandsins heldur verði að fullsmíða bátana inni í Evrópusambandinu. Ísland geti ekki flutt báta til ESB nema þeir séu smíðaðir eftir móti, líkt og t.d. trefjaplastbátar, og skoðunarmenn Evrópusambandsins séu búnir að staðfesta að mótið standist Evrópukröfur. Grænlensku kajakarnir séu ekki smíðaðir eftir móti og því sé fullnaðarframleiðsla hér á landi ómöguleg. Baldvin segir að þótt Grænland sé ekki í ESB sé hægt að fullsmíða báta svipaðrar gerðar þar með því að senda bátana fyrst til Danmerkur. Þar sem Grænland heyri undir Danmörku hafi verið hægt að lauma þeim bakdyrameginn inn í ESB. „Þannig er það nú, það er ekki allt unnið með því að vera utan við ESB,“ segir Baldvin.

Af sömu ástæðum sé ekki hægt að senda bátana fullsmíðaða til Bandaríkjanna, hvort sem þeir eru framleiddir á Íslandi eða innan ESB. Á hinn bóginn sé hægt að senda grindurnar til Bandaríkjanna og klára framleiðsluna þar. Bandaríkjamenn gera með öðrum orðum sömu kröfur og ESB. Á báðum þessum tollsvæðum þurfi að framleiða bátana innan viðkomandi tollsvæða og þarf smíðin að standast ýmsar reglugerðir.

Ekki hægt að klára bátana hér á landi eins og stendur

Eins og stendur eru það þó ekki kröfur ESB eða Bandaríkjamanna sem koma í veg fyrir að bátarnir séu fluttir fullsmíðaðir úr landi. Hér á landi eru nefnilega ekki til vélar sem ráða við að sauma dúkinn á grindina. Baldvin segir að þetta hafi komið sér verulega á óvart. Hann hafi leitað mikið að fyrirtæki sem gæti saumað dúkinn á bátana en ekkert hefði treyst sér til þess. Ekkert fyrirtæki hefði heldur getað fræst tiltekin stykki í grindina sem þarf að fræsa með svonefndri tölvufræsun. Í staðinn var kanadískt fyrirtæki sem framleiðir hluta í dýr húsgögn fengið til að sjá um tölvufræsunina. Hér á landi sé hvorki þekking né tæki til slíkrar framleiðslu sem hljóti að vera áhyggjuefni. „Það vantar alls konar smáiðnað á Íslandi,“ segir hann.

En þótt framleiðslugetan hafi ekki dugað fyrir kajaksmíðina var hægt að nota íslenskt hugvit til að teikna grindurnar í bátana. Um það sá skipatæknistofan Navis sem styrktarmældi alla bita og passaði upp á jafnvægi bátsins yrði hárrétt. „Þetta er bara teiknað eins og skip. Við erum búnir að fjárfesta mikið í grunninum og getum þess vegna auðveldlega náð framleiðslumagninu upp,“ segir Baldvin.

Hægt er að velja milli tveggja tegunda af grindum og hægt er að velja á milli dúka af þremur gerðum. Hvor grindin kemur í 10 stærðum. „Þú velur þetta bara eins og skó.“

Grindurnar 15 sem sendar verða til Svíþjóðar fara á sölusýningar þar, í Noregi og víðar. Þegar sú sending er klár verður byrjað að framleiða upp í pantanir hér á landi sem eru orðnar allnokkrar . Til að ná fimm ársverkum (þar af fjórum á Íslandi) þarf framleiðslan að vera um 150 bátar á ári.

Kreppur (þó ekki gjaldeyriskreppur) auka kajakróður

Á Íslandi er miðað við að bátarnir kosti 250.000 krónur en þeir verða um helmingi dýrari í Noregi. Til samanburðar má nefna að trefjaplastkajak af bestu gerð hefur til skamms tíma kostað um 500.000 krónur, tvöfalt meira en fyrir banka- og krónuhrun.

Baldvin segir að töluverður vöxtur sé í kajaksportinu á Norðurlöndunum. Eigendur Point 65° sem er stærsti kajakframleiðandi á Norðurlöndunum hafi bent á að þegar kreppa skelli á í efnahagslífinu aukist áhugi á kajaksportinu. „Það er vegna þess að fólk ferðast á heimaslóðum. Þannig að kreppa er góð fyrir kajaksportið, það er að segja meðan ekki er gjaldmiðilskreppa,“ segir Baldvin.

Heimasíða Greenland Kayaks er hér.

Fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér kajakróður nánar má benda á vef Kayakklúbbsins. 

Sjókajakræðarar í brimi við Þorlákshöfn, þó ekki á grænlenskum bátum.
Sjókajakræðarar í brimi við Þorlákshöfn, þó ekki á grænlenskum bátum. mbl.is/Rax
Kajakræðarar þreyta kappi í Reykjavíkurbikarnum, elstu keppni Kayakklúbbins. Leiðin er …
Kajakræðarar þreyta kappi í Reykjavíkurbikarnum, elstu keppni Kayakklúbbins. Leiðin er 10 km löng og getur róðurinn verið krefjandi hjá hinum kappsömu. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert