Óska upplýsinga um söluna á Vestia

Icelandic Group er eitt af fyrirtækjunum inni í Vestia. stækka

Icelandic Group er eitt af fyrirtækjunum inni í Vestia. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Fjármálaráðuneytið skrifaði í morgun bréf til Bankasýslu ríkisins þar sem óskað var eftir eins tæmandi upplýsingum og kostur er á um aðdraganda sölu Landsbankans á eignarhaldsfélaginu Vestia til Framtakssjóðs Íslands. 

Þetta kom fram hjá Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra, í utandagskrárumræðu á Alþingi um Vestia-málið svonefnda. Steingrímur sagði, að Bankasýslan hefði einnig verið beðin um að afla upplýsinga um hvaða sjónarmið hafi legið að baki sölunni, þá verkferla sem stuðst var við og eftir atvikum undanþágur, sem veittar voru frá meginreglum um opið söluferli. Loks var Bankasýslan beðin um upplýsingar um það hvernig Landsbankinn hyggist beita sér fyrir því að samskonar reglum verði fylgt við sölu fyrirtækja út úr Vestia.

Umræðan fór fram að ósk Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokks, sem sagði að hugsanlega væri um að ræða stærstu einkavæðingu Íslandssögunnar og skortur á upplýsingum um söluferlið og síðan sölu á fyrirtækjum út úr Vestia væri uppskrift að tortryggni.

Guðlaugur Þór spurði Steingrím m.a. hvers vegna hann hefði ekki staðið við þau orð sín, sem hann lét falla í nóvember, að Bankasýslan muni beina þeim tilmælum til Framtakssjóðs að hann viðhafi verklagsreglurnar eins og bankinn ætti í hlut þegar að því kæmi, að fyrirtækin innan Vestia verði skráð á markað eða seld.

Steingrímur sagðist telja að staðið hafi verið við það sem að fjármálaráðuneytinu snéri. Þá sagði hann, að Framtakssjóðurinn og Vestia hefðu látið opinberlega í ljós áhuga á að fá samstarfsaðila að rekstri Icelandic Group, sem nú er innan Vestia. Í framhaldinu hefðu allmargir aðilar snúið sér til Framtakssjóðsins og eða Icelandic og lýst áhuga sínum og síðan hafi farið fram viðræður við einn þeirra aðila, fjárfestingarsjóðinn Triton, um möguleg kaup hans á eignum út úr Icelandic.

Krefst upplýsinga um söluverð

Guðlaugur Þór spurði  hvort Steingrímur muni upplýsa um söluverð á þeim fyrirtækjum sem voru seld yfir til Framtakssjóðs frá Landsbankanum og sagði það grundvallaratriði. Steingrímur sagðist ekki kannast við, að upplýsingar  um verð í þessum viðskiptum hafi ekki verið veittar. Fram hefði komið skýrt fram í skriflegu svari til Guðlaugs Þórs á Alþingi, að verðið var 15,5 milljarðar króna. Landsbankinn haldi eftir 19% hlut í Icelandic Group og eignist 25% hlut í Framtakssjóðnum. Jafnframt hafi komið fram að hlutafé Icelandic Group hafi verið metið 13,9 milljarðar og samanlagt verðmæti annarra fyrirtækja innan Vestia 4,25 milljarðar.

Sagði Steingrímur, að Bankasýslan hefði farið yfir þetta mál og niðurstaðan væri, að viðskiptin hafi verið hagstæð fyrir Landsbankann.

Guðlaugur Þór sagðist hafa spurt Steingrím einfaldra spurninga, um hvort fara ætti eftir reglum í einkavæðingunni og hvort segja ætti almenningi frá söluverðinu.  Samt hefði Steingrímur leyft sér að segja, að svarið sem fjármálaráðuneytið gaf um söluverðið á Vestia væri fullnægjandi þótt upplýsingar hefði skort um skuldir og söluverð á einstökum félögum. 

„Sem þýðir að þannig eiga málin að vera," sagði Guðlaugur Þór og sagðist hvetja stjórnarliða til að koma í veg fyrir það því annars yrði aldrei friður eða traust í íslensku viðskiptalífi.

Ekki það opna söluferli sem ég hefði viljað sjá

Steingrímur sagði mikilvægt að ala ekki á tortryggni í samfélaginu. Þá sagði hann, að það orkaði tvímælis að tala um einkavæðingu því um væri að ræða einkafyrirtæki, sem lentu í erfiðleikum og viðskiptabanki viðkomandi fyrirtækja væri að reyna að endurskipuleggja þau.

Þá sagði Steingrímur að Framtakssjóðurinn væri í sjálfu sér ekki viðræðuaðili í söluviðræðum, sem nú stæðu yfir heldur fyrirtækið Icelandic, sem væri að selja út úr sínum efnahag tilteknar eignir í útlöndum.

„Ég vil hins vegar segja það hér skýrt: Þetta er ekki það opna söluferli, eða tilboðsferli sem ég hefði kosið að Framtakssjóður hefði viðhaft. Það ber að leggja á það áherslu, að í framtíðinni verði öðruvísi að þessum hlutum staðið. Við skulum svo bíða og sjá hvort yfir höfuð verði um nokkra sölu að ræða og þá hafa menn tækifæri til að bæta ráð sitt," sagði Steingrímur J. Sigfússon.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu Skoda Octavia
Skoda Octavia 1600, bensín ,árg. 2000 beinskiptur, næsta skoðun 2013 (númer í g...
Honda CR-V 2008 Til Sölu
Til sölu Honda Cr-v skráð 10.1.2008 Ekin 90.xxx þ km. Með öllum aukabúnaði nem...
Framstuðari á PT. Crushier 2005-8
Til sölu splunkunýr framstuðari. Fullt verð hér 135 þús.(Uppgefið Bíljöfur). Ég...
Lenovo spjaldtölva "7 skjár - ný
Til sölu Lenovo spjaldtölva með 7"skjá, 512 MB minni, 16GB disks og Android stýr...
 
Samtök atvinnulífsins
Önnur störf
LÖGFRÆÐINGUR Samtök atvinnulífsins lei...
Bifreiðauppboð
Uppboð
Sýslumaðurinn á Selfossi Hörðuvöllum 1,...
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...