„Menn stígi varlega til jarðar“
Jón Pétur Jónsson„Mér finnst að fólk eigi að fara varlega í það að draga ályktanir og ýja að einhverju sem það hefur engar sannanir fyrir eða forsendur,“ segir Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, spurð út í meintar njósnir á Alþingi.
Það minni sig einna helst á bandarískan spennuþátt hvernig menn hafi túlkað þessar fréttir.
Morgunblaðið greinir frá því í dag að að fartölva hafi fundist í auðu herbergi í húsnæði á vegum Alþingis við Austurstræti í febrúar í fyrra. Lögreglan var kölluð til, en grunur lék á að henni hefði verið komið fyrir til þess að brjótast inn í tölvur þingmanna og tölvukerfi Alþingis, hlaða niður gögnum og senda í aðra tölvu.
Birgitta segist vera hissa á því að hafa ekki fengið að vita um þennan tölvufund fyrr. Aðspurð segist hún fyrst hafa fengið að vita um málið í morgun á fundi forsætisnefndar þingsins.
„Samkvæmt því sem kom fram á fundi forsætisnefndar í morgun, frá forseta þingsins, var að Bjarni Ben[ediktsson] vissi af þessu og Jóhanna Sigurðardóttir, en ekki neinir aðrir þingmenn,“ segir Birgitta.
Það hefði verið gagnlegt að fá að vita af þessu og ræða í framhaldinu um tölvuöryggi þingsins. „Sér í lagi í ljósi þess sem ég er að upplifa núna frá hendi bandarískra yfirvalda. Tölvuöryggi almennra borgara eða þingmanna er ákaflega lítið ef þar er ekki inni í öruggari kerfum,“ segir hún.
Birgitta bendir á að tölvan hafi fundist á sömu hæð og Hreyfingin og Sjálfstæðisflokkurinn séu með aðstöðu. Umrætt herbergi heyri bæði undir varaþingmenn Hreyfingarinnar og Sjálfstæðisflokksins. Hún segir að menn eigi ekki að dylgja með það að Hreyfingin eða Wikileaks tengist málinu frekar en einhverjir aðrir
„Mér finnst að fólk eigi að stíga varlega til jarðar,“ segir hún og gagnrýnir fréttaflutning Morgunblaðsins, þar sem tekið sé fram að tölvan hafi fundist á skrifstofu þingmanna Hreyfingarinnar og að grunur leiki á að tölvuþrjótar á vegum Wikileaks hafi komið tölvunni fyrir. Í fréttinni sé of mikið um túlkanir.
Birgitta segir að þeir sem starfi fyrir Wikileaks séu ekki þekktir fyrir það að brjótast inn í tölvukerfi til að ná í upplýsingar. Aftur á móti hafi þeir tekið við gögnum frá heimildarmönnum til að afhenda blaðamönnum og almenningi.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 25. janúar 2012, Innlent Komin með átta þingmenn
- Laugardagur, 4. febrúar 2012, Innlent Býst ekki við að ná 32 nöfnum
- Laugardagur, 8. janúar 2011, Innlent Twitter gert að afhenda öll skilaboð Birgittu
- Mánudagur, 14. mars 2011, Innlent Notendur samskiptasíðna fá engu ráðið
- Mánudagur, 12. apríl 2010, Innlent Sjáum hverjir eru mikilmenni og lítilmenni
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































